Skip to main content

Hvernig á að þrífa Quick Lashes💧

Hvernig á að þrífa Quick Lashes💧

Til að halda Quick Lashes augnhárunum þínum fallegum, hreinum og endurnýtanlegum er mikilvægt að þrífa þau rétt💖

🧴 Allt sem þú þarft til að halda augnhárunum þínum í toppstandi

💕 Gyllt og cute geymslubox með spegli – fullkomið til að geyma augnhárin á öruggan og fallegan hátt.
🫧 Lash Bath hreinsisápa – sérhönnuð til að hreinsa augnhár á mildan hátt.
🪄 Hreinsibursti – hjálpar til við að fjarlægja óhreinindi og límleifar án þess að skemma augnhárin.

♻️ Fyrir endurnýtanleg augnhár

Ef þú vilt hreinsa notuð augnhárin og nota þau aftur, fylgdu þessum skrefum:

  1. Leggðu augnhárin í bleyti:
    Settu augnhárin í litla skál og hyljið þau með 70%–91% ísóprópýlalkóhóli.

  2. Leyfðu líminu að leysast upp:
    Láttu þau liggja í bleyti í 10–15 mínútur eða lengur (þú getur líka látið þau liggja yfir nótt).

  3. Fjarlægðu leifar:
    Notaðu greiðu eða eyrnapinna til að bursta eða toga varlega af límleifarnar.

  4. Þurrkaðu:
    Leggðu hreinu augnhárin á pappír/handklæði og leyfðu þeim að þorna alveg.

  5. Geymdu rétt:
    Þegar þau eru þurr, burstaðu þau varlega og settu í upprunalega öskjuna eða geymsluboxið frá okkur og geymdu þau þar til næstu notkunar.

👁️ Ef þú vilt þrífa augnhárin á meðan þau eru á þér

  1. Settu Lash Bath hreinsi í hreinsibursta.

  2. Hreinsaðu varlega:
    Strjúktu burstanum varlega meðfram og undir augnhárunum.

  3. Skolaðu:
    Skolaðu svæðið með köldu, hreinu vatni  til að fjarlægja hreinsiefnið.

  4. Þurrkaðu varlega:
    Þurrkaðu varlega með því að dúmpa mjúkum þvottapoka eða klút á augnhárin (ekki nudda). forðastu að toga í augnhárin.

 👉 Þú getur líka notað litla viftu til að þau þorni hraðar.

  1. Greiddu augnhárin með hreinni augnháragreiðu þegar þau eru orðin alveg þurr.

✨ Með réttri umhirðu endast augnhárin þín lengur, líta betur út og eru alltaf tilbúin fyrir næsta „look“! ✨

 

Comments

Be the first to comment.