Húðumhirða fyrir fallega förðun ✨
Húðumhirða ✨
Undirbúningur húðar fyrir fallega förðun
Falleg förðun byrjar ekki með farðanum sjálfum heldur með góðum undirbúningi húðarinnar. Hrein, vel nærð og rakamikil húð skapar fallegri áferð og getur hjálpað farðanum að sitja betur og endast lengur yfir daginn.
Yfirborðshreinsun húðar fyrir förðun
Góð hreinsun er mikilvægur hluti af húðumhirðu, sérstaklega áður en farði er borin á. Með hreinsun fjarlægjum við krem, farða, svita, umfram húðfitu og önnur óhreinindi sem safnast á húðina yfir daginn.
Regluleg hreinsun, bæði kvölds og morgna, er góður grunnur að heilbrigðri húð. Hreinsunin undirbýr jafnframt húðina fyrir þau virku innihaldsefni sem koma næst í húðrútínunni, til dæmis serum og krem.
Þegar kemur að förðun er sérstaklega mikilvægt að húðin sé hrein og vel undirbúin. Það getur skipt miklu máli fyrir það hvernig farðinn leggst á húðina og hversu falleg og jöfn áferðin verður.
Hvaða hreinsi á ég að velja?
Hreinsivörur eru til í mismunandi formum, meðal annars sem hreinsimjólk, gel eða froðuhreinsir. Val á hreinsi ætti að taka mið af húðgerð, húðástandi og því hversu mikinn farða eða óhreinindi þarf að fjarlægja.
Áður en húðrútínan hefst er alltaf gott að þvo hendurnar vel.
Hreinsun í tveimur skrefum
Góð regla er að hreinsa húðina kvölds og morgna og, þegar þörf er á, hreinsa hana í tveimur umferðum. Gefðu þér um það bil 60 sekúndur í hverja hreinsun og nuddaðu húðina með mjúkum, hringlaga hreyfingum.
Val á hreinsun er:
Hreinsimjólk:
Berið hreinsimjólkina á húðina með höndunum og nuddið henni varlega inn í húðina í um 60 sekúndur. Fjarlægið síðan með rökum bómul eða mjúkum þvottapoka. Endurtakið ef þörf er á.
Gel- og froðuhreinsir:
Berið hreinsinn á með höndunum. Gott er að væta fingurna létt og nudda hreinsinn þar til hann myndar létta froðu. Nuddið húðina varlega í hringlaga hreyfingum í um 60 sekúndur og skolið eða fjarlægið með mjúkum, rökum þvottapoka eftir leiðbeiningum vörunnar.
Augnfarðahreinsir
Augnfarðahreinsar eru oft í formi létts gels eða vökva. Val á augnfarðahreinsi fer meðal annars eftir því hvers konar augnfarði er notaður og hversu mikinn farða þarf að fjarlægja.
Mikilvægt er að
vinna varlega í kringum augun og forðast óþarfa núning á viðkvæmu húðsvæðinu.
Andlitsvatn – Toner
Andlitsvatn er næsta skref í húðrútínunni hjá mörgum. Hlutverk þess getur verið mismunandi eftir vörutegundum og innihaldsefnum. Sum andlitsvötn eru frískandi og rakagefandi á meðan önnur eru sérstaklega hönnuð til að róa eða styðja við ákveðin húðvandamál.
Andlitsvatn getur einnig hjálpað til við að fjarlægja leifar af hreinsivörum og undirbúa húðina fyrir næstu skref í húðrútínunni.
Berið andlitsvatnið á með höndunum eða með vættum bómul, eftir leiðbeiningum vörunnar, og leyfið því að setjast inn í húðina áður en næsta vara er borin á.
Athugið: Húðin þarf ekki endilega andlitsvatn og notkun þess fer eftir húðgerð og vörunni sem valin er.
Serum og krem
Þegar kemur að förðun er vel nærð og rakamikil húð góður grunnur. Rétt húðrútína getur hjálpað til við að skapa mýkri og jafnari áferð þannig að farðinn leggist fallega á húðina.
Þegar þú velur serum og krem er gott að hafa húðgerð og húðástand í huga. Ef þú ert óviss um hvaða vörur henta þér getur verið mjög gagnlegt að ráðfæra sig við snyrtifræðing sem getur metið húðina og aðstoðað við val á vörum.
Rétt röð á húðrútínunni
Almenna reglan er að byrja á léttustu vörunum og vinna sig upp í þykkari áferð:
-
Hreinsir
-
Andlitsvatn, ef það er hluti af húðrútínunni
-
Serum
-
Augnkrem
-
Andlitskrem
-
Sólarvörn, sérstaklega á morgnana
Sólarvörn er mikilvægt síðasta skref í rútínunni.
Smá tips fyrir fallegri förðun
Nærðu varirnar áður en þú byrjar að farða þig.
Ef þú vilt fá mjúkar og fallegar varir undir varalit eða gloss er frábært að bera á varamaska eða góðan varasalva í upphafi förðunarrútínunnar. Þá fær varan tíma til að mýkja og næra varirnar á meðan þú klárar restina af förðuninni.
Eitt af mínum uppáhalds vörum fyrir þetta er Goodnight Lip Mask frá Janssen Cosmetics.
Gefðu húðinni smá tíma
Eitt lítið en mikilvægt atriði er að flýta sér ekki. Eftir að serum og krem hafa verið borin á er gott að gefa húðinni nokkrar mínútur til að taka við vörunum áður en förðun hefst.
Þannig fær húðin tíma til að róast og vörurnar að setjast áður en primer og farði koma næst.
Falleg förðun byrjar með góðri húðumhirðu. Með réttri hreinsun, raka og góðum undirbúningi verður húðin betri grunnur fyrir förðunina og þú getur náð fram fallegri, jafnri og ferskri áferð.
Ef þið hafið spurningar varðandi húðvörur ekki hika við að hafa samband : info@labellebeauty.is
XOXO
Pálína snyrtifræðimeistari, eigandi Eden snyrtistofu og La belle beauty





Comments