Skip to main content

Afhverju að velja hormónalaust augnháraserum?

Afhverju að velja hormónalaust augnháraserum?

Löng og falleg augnhár án hormóna

Falleg, löng og þétt augnhár er eitthvað sem mörgum langar í!  En þegar kemur að augnháraserum þá eru ekki öll serum eins. Sum serum innihalda efni sem tengjast prostaglandínum (hormón), á meðan önnur innihalda  peptíð, vítamín og plöntuextract, sem eru serum án hormóna.

Þess vegna er hormónalaust augnháraserum góður kostur fyrir þá sem vilja hugsa vel um augnhárin sín án þess að nota prostaglandín (hormón)

Hvað þýðir að augnháraserum sé hormónalaust?

Þegar talað er um hormónalaust augnháraserum er átt við serum sem inniheldur ekki hormóna eða prostaglandínafleiður sem virkt innihaldsefni.

La Belle Beauty Lash Serum | INTENSE er einmitt þannig formúla. Serumið er án prostaglandína, parabena og súlfata og er einnig vegan og cruelty-free.
Hentar því vel fyrir viðkvæm augu.

Í staðinn byggir formúlan á blöndu af innihaldsefnum eins og peptíðum, panthenol, biotin, hyaluronate og ýmsum plöntuextract.

Hvað getur gerst við notkun prostaglandína (hormóns)?

Prostaglandínafleiður geta haft áhrif á meira en bara augnhárin. Þekktar aukaverkanir við notkun slíkra efna í kringum augun eru meðal annars erting, roði og breytingar á lit húðarinnar í kringum augun. Einnig hafa verið skjalfestar breytingar á útliti augnlokanna og fituvef í kringum augun við langvarandi notkun.

Í sumum tilfellum getur litabreyting orðið í lithimnu augans. Sérstaklega hefur verið varað við því að aukin brún litun lithimnu við notkun geti verið varanleg.

Það er því ekki bara spurning um að fá lengri augnhár, heldur líka um að hugsa um heildina og viðkvæma augnsvæðið.

Af hverju gæti hormónalaust serum verið góður kostur?

Augnsvæðið er viðkvæmt og augnhárin sjálf eru viðkvæm fyrir álagi. Þess vegna vilja margir velja einfaldari nálgun þegar kemur að vörum sem eru notaðar daglega nálægt augunum.

Hormónalaust serum getur verið góður valkostur fyrir þá sem vilja einbeita sér að því að styðja við heilbrigðari, sterkari og fallegri augnhár án prostaglandína (hormóna).

Það sem mér finnst sérstaklega áhugavert við hormónalausa nálgun er að markmiðið er ekki bara að fá lengri augnhár heldur einnig að hugsa vel um þau á meðan þau vaxa.

Peptíð og nærandi innihaldsefni

Lash Serum | INTENSE inniheldur meðal annars Biotinoyl Tripeptide-1 og Myristoyl Pentapeptide-17 ásamt panthenol og biotin. Formúlan inniheldur einnig plöntuextract úr meðal annars ginseng og japönsku Swertia-plöntunni.

Þessi samsetning gerir serumið að áhugaverðum kosti fyrir þá sem vilja hlúa að augnhárunum og styðja við útlit þeirra.

Serumið er einnig olíulaust og létt í áferð, sem gerir það auðvelt að setja lítið magn við augnhárarótina og hægt að nota með augnháraleningum eins og DIY augnhár / Quick lashes.

Hvenær má búast við árangri?

Þolinmæði skiptir máli þegar kemur að augnhárum.

Fyrstu sýnilegu breytingarnar koma fram eftir um 4–8 vikur og fullur árangur getur tekið lengri tíma.

Mikilvægt er því að nota serumið reglulega og gefa því tíma.

Leiðbeiningarnar fyrir INTENSE eru að bera lítið magn við augnhárarótina einu sinni á dag, helst á kvöldin, í 12 vikur. Eftir það er mælt með notkun 2–3 sinnum í viku til að viðhalda árangrinum.

Lítið magn er nóg

Meira er ekki alltaf betra, sérstaklega þegar kemur að augnsvæðinu.

Best er að bera lítið magn varlega við augnhárarótina og leyfa seruminu að þorna.
Forðast skal að fá serumið inn í augað eða bera það á húðina í kringum augun.

Þetta er líka ein af ástæðunum fyrir því að mér finnst gott að serumið sé með létta áferð og hönnun sem hjálpar til við að skammta rétt magn.

Fyrir hverja er hormónalaust augnháraserum?

Hormónalaust augnháraserum getur hentað vel fyrir þá sem:

✨ Vilja lengri og þéttari útlit á augnhárunum
✨ Vilja velja serum án prostaglandína / án hormóna
✨ Vilja styrkja og hlúa að augnhárunum
✨ Eru að endurnýja og lagfæra augnhárin eftir augnháralengingar
✨ Vilja einfalt serum sem hægt er að gera að hluta af kvöldrútínunni

La Belle Beauty tekur einnig fram að INTENSE formúlan sé sterkari en fyrri formúlan og að hún geti því ekki hentað allra viðkvæmustu augum.

Falleg augnhár þurfa ekki að vera flókin

Stundum þarf ekki mikið til að bæta augnhárarútínuna. Nokkrar sekúndur á kvöldin, regluleg notkun og smá þolinmæði geta verið einföld leið til að hlúa betur að augnhárunum.

Ef þú ert að leita að augnháraserumi án prostaglandína er Lash Serum | INTENSE því góður kostur, sérstaklega fyrir þá sem vilja leggja áherslu á hormónalausa formúlu og nærandi innihaldsefni.
Serumið hefur einnig notið mikilla vinsælda, fengið jákvæðar umsagnir og flottar niðurstöður.

Og eins og með allar snyrtivörur er mikilvægt að hafa í huga að árangur getur verið einstaklingsbundinn.

Löng. Þétt. Falleg. Án hormóna. 🤍

Comments

Be the first to comment.