Vinsæla Lash Serumið okkar hefur verið endurbætt og nú er formúlan töluvert öflugri!
Það þýðir að við fáum hraðvirkari niðurstöður en þó með sama örugga og hormónalausa grunninum sem við elskum allar svo heitt.
Lengri, fallegri og þéttari augnhár!
Formúlan inniheldur peptíðríka blöndu sem vinnur á öllum vaxtarstigum augnhársins og skilar sýnilegum árangri á aðeins 4-8 vikum, með fullum árangri á 3 - 6 mánuðum!
Létt og þægileg áferð
er létt og fljótandi í áferð, ekki þykkt. Það rennur auðveldlega á burstann án þess að safnast mikill og þykkur vökvi sem fer til spillis. Túpan er hönnuð með innbyggðri skömmtun sem fjarlægir umfram vökva af burstanum, þannig að rétt magn kemur í hvert skipti. Það dregur úr sóun og gerir notkunina bæði þægilegri og nákvæmari.
Notkun
Berðu serumið varlega við augnhárarót. Forðastu að bera það á húðina í kringum augun eða inni í augað. Lítið magn er nóg, meira magn eykur ekki virkni vörunnar og getur valdið ertingu í augum eða á húð. Láttu serumið þorna áður en aðrar vörur eru notaðar.
Helstu eiginleikarnir
- Hágæða hráefni fyrir skilvirkari útkomur
- Sýnilegur árangur á aðeins 4 - 8 og upp í 12 vikur.
- Sýnilegur árangur á skemmri tíma
- Hormónalaust, án prostaglandin afleiða, parabena og súlfata.
- Vegan og cruelty-free
Veldu rétta serumið fyrir þig
Lash serum | Intense : Hámarks árangur á skemmri tíma. Sterkari formúla sem gæti ekki hentað þeim alla viðkvæmustu.
Báðar vörurnar eru hormónalausar og án prostaglandin. Vegan og cruelty-free, auðvitað!
Meginmunurinn : Intense notar meiri og þéttari extract úr jurtunum. Einnig er blöndunartæknin þróaðri.