Flauelsmjúk hreinsimjólk fyrir rakaþurrar húðgerðir. Hreinsar farða, umfram fitu og óhreinindi af yfirborði húðarinnar á mildan en áhrifaríkan hátt án þess að raska sýruhjúp húðarinnar, valda herpingstilfinningu eða öðrum ónotum fyrir þurrar húðgerðir.
Mjólkin inniheldur hreina avokadóolíu sem er einstaklega rík af náttúrurlegum fitusýrum, A, E og D vítamíni sem gefa næringu og efla varnir húðarinnar á meðan hreinsun stendur.
Notkun: Nuddið húðina mjúklega með hringlaga hreyfingum og hreinsið af með volgu vatni/þvottapoka. Má einnig nota yfir augnsvæðið.
Ljúkið hreinsun húðar með Radiant Firming Toner úr sömu línu til að fullkomna hreinsunina.
Vörunúmer: JS0016