Skip to main content
LONGEVITY CARE Serum 30ml
LONGEVITY CARE Serum 30ml
LONGEVITY CARE Serum 30ml
LONGEVITY CARE Serum 30ml
LONGEVITY CARE Serum 30ml
LONGEVITY CARE Serum 30ml
EMPTY DOM REMOVE PROTECTOR

LONGEVITY CARE Serum 30ml

23,210 kr
Tax included.

EMPTY DOM REMOVE PROTECTOR
...
......
...

LONGEVITY CARE er lúxus húðumhirðulína frá JANSSEN COSMETICS þar sem nýjustu vísindi og öflug virk efni vinna saman að því að styðja við langlífi húðfrumna og varðveita styrk, lífskraft og unglegt yfirbragð húðarinnar. Markviss umhirða sem hjálpar húðinni að halda í náttúrulegan ljóma, þéttleika og seiglu með tímanum.

LONGEVITY CARE Serum leggur grunninn að allri Longevity Care húðumhirðunni. Háþróuð samsetning þess vinnur markvisst að þeim líffræðilegu ferlum sem hafa áhrif á öldrun húðarinnar og hjálpar henni að endurheimta lífskraft, styrk og ferskara yfirbragð.

Clotho, ashwagandha-rótarþykkni og Evergreen styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar, styrkja varnarhjúp hennar og auka mótstöðukraft gegn daglegu álagi og umhverfisáhrifum. Rakagefandi efni sem líkjast náttúrulegum rakabindandi efnum húðarinnar veita mikinn og langvarandi raka, slétta áferð hennar og draga úr ásýnd fínna lína.

Létt serumið smýgur hratt inn í húðina og undirbýr hana fyrir umhirðuna sem á eftir fylgir. Húðin virðist strax fyllri, ferskari og ljómandi en með reglulegri notkun styrkist varnarhjúpur hennar og stinnleiki, lífskraftur og viðnámsþróttur aukast.

Helstu eiginleikar
  • Styður við langlífi og endurnýjun húðfrumna
  • Styrkir varnarhjúp húðarinnar
  • Dregur úr áhrifum daglegs umhverfisálags
  • Veitir mikinn og langvarandi raka
  • Sléttir áferð og dregur úr ásýnd fínna lína
  • Eykur lífskraft og ljóma

Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega húð sem er þreytt, rakaþurr eða hefur misst styrk, fyllingu og ljóma.

Berið á hreina húð að morgni og/eða kvöldi. Berið síðan á augnkrem og andlitskrem. Einnig má nota serumið sem kúrameðferð þegar húðin þarfnast aukins lífskrafts og ferskleika.

Helstu virku innihaldsefni
  • Clotho – styður við endurnýjun og langlífi húðfrumna
  • Ashwagandha-rótarþykkni – styrkir varnarhjúp og mótstöðukraft húðarinnar
  • Evergreen – styður við myndun Sirt-1 og hjálpar til við að draga úr sykrun kollagens
  • Níasínamíð – styrkir varnarhjúp og rakabirgðir húðarinnar
  • Sakkaríðísómerat – sykrusamband sem líkist náttúrulegum rakabindandi efnum húðarinnar
  • Löng, stutt og krosstengd hýalúrónsýra – veita raka á mismunandi stigum
 

Customer Reviews

Overall rating: 4.8 / 5 from 899 reviews.

Customer photo review of Blær

Í like it’s neals so much ❤️

Blær

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Ég mæli með intense seruminu, það gjörbreytti augnhárunum mínum. Ég er með mjög viðkvæm augu og hef verið að lenda í því að augnhárin detti af. En þetta hefur klárlega styrkt þau og gert þau lengri.

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Ósk

Svo náttúruleg og falleg, elska! 😍 þetta eru my daily new fav!

Ósk

Customer video review of Eyelash curler

Ég elska þennan augnhárabrettara😍 hann rýfur ekki augnhárin úr og gefur mjög náttúrulegt krul

Eyelash curler

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Fyrir er uppi og eftir er niðri er aðeins búinn að vera nota það í 1 og hálfa viku og sé strax mun með styrk og lengd augnhárinn eru ekki að brotna af eins og þau voru fyrirfram, það eru meiri seigja kominn augnhár þar sem voru einginn. Mæli 100% með 💯

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Ég byrjaði að nota þetta serum 9. Júní 2026 og sé KLIKKAÐAN mun bara á rúmlegum mánuði! Setti inn myndir eftir og fyrir serumið. Eins og má sjá á mynd nr 2 að þá voru augnhárin mín búin að brotna og detta af og voru orðin mjög viðkvæm. En núna í dag eru þau bæði miklu lengri, þykkri og sterkari! Gæti ekki mælt meira með, 10/10😇

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of 🎁 Candy (100% off)

Bestu press on neglur sem ég hef prufað. Hef sjaldan fengið eins mörg hrós og þegar ég var með þessar!

🎁 Candy (100% off)

Customer photo review of Dís

🩷🩷🩷🩷

Dís

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Ég er mjög ánægð með þetta lash serum! Augnhárin mín urðu sýnilega lengri og fyllri eftir nokkrar vikur. Mjög auðvelt í notkun og pirraði ekki augun mín.

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Guðný

Algjör æði að geta sett á sig fyrir útlanda ferð og verið skvísa alla ferðina ❤️ Fer í sund og allt með þær og þær eru enþá fullkomnar 👌

Guðný

Customer video review of Lash Serum | INTENSE

Love’s let’s take a minute! Er amazed yfir hversu geggjuð þessi vara er 🥵😍

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Nei sko þessi mynd segir allt sem þarf að segja um þetta augnhára serum💗

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Fyrir ég setti og svo 2 vikur seinna nú er bara eftir að fá sér lash lift!😍 mæli með 🤩

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Rebekka

Sjúlllaðar neglur, haldast vel á🤩🤩

Rebekka

Customer video review of Mist Volume pakki

Elska þetta og nota alla daga in love 😍

Mist Volume pakki

Customer video review of Fanney

Elska þær! Svo veglegar og þægilegar

Fanney

Customer photo review of Repair & Care | Augnháranæring

“This product is not good. I didn’t see any results “This product is not good at all. I used it and didn’t see any results This product is not good.😭

Repair & Care | Augnháranæring

Store owner replied: Hi love 💕 this product is not an lash serum. If you want longer lashes you need intense lash serum. This one is just a conditioner that helps your hairs to get moisture and not break

Customer photo review of Hvítt bond (lím)

Þau taka augnhárin af svo léttilega an þess að rífa neitt úr

Hvítt bond (lím)

Customer photo review of Mist C curl

Mjög flott og endingargóð augnhár

Mist C curl

Customer photo review of Dís

Geggjað

Dís

Customer video review of Mía

Stuttar, sterkar og flottar 🤌🏼

Mía

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

ELSKA þetta serum! Hef prófað alskonar serum en aldrei séð svona mikinn mun svona fljótt. Var með augnháralengingar í 2 ár, tók þau af og byrjaði strax að nota serumið. Þau eru orðin mun lengri og þykkari bara eftir 1/2 mánuð🩷

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Svart bond (lím)

Búin að haldast á í meira en viku, elskaaaa

Svart bond (lím)

Customer video review of Katla C curl

Þetta eru mínu uppahalds augnhár! Ég bara a þau alltaf til heima, cant live without them! 😍😍😍

Katla C curl

Customer photo review of Katrín

Þær eru geggjaðar!😍

Katrín

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Besta augnháraserum sem ég hef prófað! Lengri, þéttari og fallegri augnhár á nokkrum vikum! Ég elska líka að ég fæ engan roða eða þurrk í kringum augun eins og vill oft gerast 10/10 🌸💕

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Þetta augnhárserum hefur algjörlega farið fram úr öllum væntingum✨ Eftir nokkrar vikur urðu augnhárin mín bæði lengri og þykkari! lovelovelove🤩

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Svakalega ánægð með serumið sem lengir og þykkir hárin 🤩 nota ekki daglega lengur bara að viðhalda þeim :)

Lash Serum | INTENSE

Customer video review of 🎁 Tara - L curl (100% off)

Fæ þau samt ekki til að haldast á mér lengur en svona 4 daga veit ekki hvað ég er að gera vitlaust

🎁 Tara - L curl (100% off)

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Ég hef alltaf verið með nokkuð heilbrigð augnhár, en ákvað þó að splæsa í Lash Serum INTENSE og hef verið að nota það núna í um 2 vikur og er strax farin að sjá mun á augnhárunum mínum. Þau eru hætt að detta jafn mikið af og eru farin að lengjast.

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Guðný

Myndirnar eru 8 dögum eftir að þær voru settar á 😍

Guðný