Skip to main content
Epigenetic Glow Duo
Epigenetic Glow Duo
EMPTY DOM REMOVE PROTECTOR

Epigenetic Glow Duo

9,960 kr
Tax included.

EMPTY DOM REMOVE PROTECTOR
...
......
...

Epigenetic Glow Duo – tímalaus fegurð og geislandi ljómi

Háþróuð virkni gegn öldrunareinkennum og samstundis meiri húðljómi. Epigenetic Serum og Sensational Glow Cream sameina krafta sína í öflugu tvíeyki sem hjálpar húðinni að viðhalda unglegu yfirbragði með háþróaðri epigenetic tækni. Viðgerðarferli og varnarviðbragð húðfrumna er glætt nýrri orku sem styrkir mótstöðuafl og eykur lífsþrótt sem skilar af sér lengri líftíma húðfrumna.

Við það fær húðin aukna seiglu sem hægir á náttúrulegu öldrunarferli og hrörnun líkt og tíminn standi í stað!

Epigenetic Serum vinnur gegn áhrifum ytra álags á húðina og styður við mótstöðu hennar, á meðan Sensational Glow Cream eykur rakafyllingu og gefur yfirborðinu sléttari ásýnd. Saman mæta vörurnar þörfum húðar sem farin er að sýna fínar línur, rakaþurrk og minnkandi ljóma — falleg gjöf fyrir húðina og dekur til að njóta á hverjum degi.

Settið kemur í fallegum gjafapoka frá Janssen Cosmetics.

Inniheldur 1x Epigenetic Serum 10 ml og 1x Sensational Glow Cream 20 ml.

Epigenetic Serum · 10 ml

Sérhæft serum sem byggir á epigenetískri tækni til að vinna gegn sýnilegum öldrunareinkennum. Kjarninn í formúlunni er virkt efni úr blómum Calendula officinalis sem hjálpar til við að draga úr epigenetískum breytingum af völdum umhverfisáhrifa og styður við lífsþrótt og mótstöðu húðfrumna.

Hyaluronsýra og Saccharide Isomerate bæta rakabindingu húðarinnar og hjálpa henni að varðveita raka. Húðin fær aukna mýkt og rakafyllingu sem sléttir úr fínum línum á yfirborði húðarinnar og minnkar umfang á dýpri línum sem undirstrikar unglegt yfirbragð.

Sensational Glow Cream · 20 ml

Sensational Glow Cream er eitt af söluhæstu kremum JANSSEN COSMETICS og fylgir með í hátíðarútgáfu í 20ml túpu.

Sensational Glow Cream er 24 stunda krem sem veitir húðinni ríkulega rakagjöf og gefur henni samstundis ferskara, jafnara og ljómandi yfirbragð. Tvöföld hýaluronsýra veitir húðinni djúpvirkandi rakagjöf og fyllingu á meðan Soft Focus Pigments fylla uppí yfirborðslínur og gefa húðinni fallegan, náttúrulegan ljóma sem endurkasta birtu þannig húðin fær enn sléttari áferð. Þörungaþykkni úr Indlandshafi styður við sléttari og jafnari húðáferð. Equal Refining Complex stuðlar einnig að auknu jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar, dregur úr sýnileika húðhola og óæskilegum olíuglans með sampili aloe vera og allantoin sem sefa roða og hlúa að húðinni.

Við reglulega notkun fínpússast áferð og yfirbragð húðarinnar og rannsóknir sýna fram á virkni þar sem stórar og opnar húðholur minnka og dragast saman um allt að 16% og dregið hefur úr olíuglans um allt að 21,7% eftir 28daga notkun.

Notkun

Berið Epigenetic Serum á hreina húð yfir andlit kvölds og morgna og nuddið mjúklega inn. Berið síðan Sensational Glow Cream yfir andlit, háls og bringu.

 

Customer Reviews

Overall rating: 4.8 / 5 from 919 reviews.

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Þetta er besta lash serum sem ég hef profað. Það virkaði lika ekkert óeðlilega hratt þetta var efir svona 1-2 vikur á milli mynda þetta er algjör snilld!

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Blær

Í like it’s neals so much ❤️

Blær

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Ég mæli með intense seruminu, það gjörbreytti augnhárunum mínum. Ég er með mjög viðkvæm augu og hef verið að lenda í því að augnhárin detti af. En þetta hefur klárlega styrkt þau og gert þau lengri.

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Ósk

Svo náttúruleg og falleg, elska! 😍 þetta eru my daily new fav!

Ósk

Customer video review of Eyelash curler

Ég elska þennan augnhárabrettara😍 hann rýfur ekki augnhárin úr og gefur mjög náttúrulegt krul

Eyelash curler

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Fyrir er uppi og eftir er niðri er aðeins búinn að vera nota það í 1 og hálfa viku og sé strax mun með styrk og lengd augnhárinn eru ekki að brotna af eins og þau voru fyrirfram, það eru meiri seigja kominn augnhár þar sem voru einginn. Mæli 100% með 💯

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Ég byrjaði að nota þetta serum 9. Júní 2026 og sé KLIKKAÐAN mun bara á rúmlegum mánuði! Setti inn myndir eftir og fyrir serumið. Eins og má sjá á mynd nr 2 að þá voru augnhárin mín búin að brotna og detta af og voru orðin mjög viðkvæm. En núna í dag eru þau bæði miklu lengri, þykkri og sterkari! Gæti ekki mælt meira með, 10/10😇

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of 🎁 Candy (100% off)

Bestu press on neglur sem ég hef prufað. Hef sjaldan fengið eins mörg hrós og þegar ég var með þessar!

🎁 Candy (100% off)

Customer photo review of Dís

🩷🩷🩷🩷

Dís

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Ég er mjög ánægð með þetta lash serum! Augnhárin mín urðu sýnilega lengri og fyllri eftir nokkrar vikur. Mjög auðvelt í notkun og pirraði ekki augun mín.

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Guðný

Algjör æði að geta sett á sig fyrir útlanda ferð og verið skvísa alla ferðina ❤️ Fer í sund og allt með þær og þær eru enþá fullkomnar 👌

Guðný

Customer video review of Lash Serum | INTENSE

Love’s let’s take a minute! Er amazed yfir hversu geggjuð þessi vara er 🥵😍

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Nei sko þessi mynd segir allt sem þarf að segja um þetta augnhára serum💗

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Fyrir ég setti og svo 2 vikur seinna nú er bara eftir að fá sér lash lift!😍 mæli með 🤩

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Rebekka

Sjúlllaðar neglur, haldast vel á🤩🤩

Rebekka

Customer video review of Mist Volume pakki

Elska þetta og nota alla daga in love 😍

Mist Volume pakki

Customer video review of Fanney

Elska þær! Svo veglegar og þægilegar

Fanney

Customer photo review of Repair & Care | Augnháranæring

“This product is not good. I didn’t see any results “This product is not good at all. I used it and didn’t see any results This product is not good.😭

Repair & Care | Augnháranæring

Store owner replied: Hi love 💕 this product is not an lash serum. If you want longer lashes you need intense lash serum. This one is just a conditioner that helps your hairs to get moisture and not break

Customer photo review of Hvítt bond (lím)

Þau taka augnhárin af svo léttilega an þess að rífa neitt úr

Hvítt bond (lím)

Customer photo review of Mist C curl

Mjög flott og endingargóð augnhár

Mist C curl

Customer photo review of Dís

Geggjað

Dís

Customer video review of Mía

Stuttar, sterkar og flottar 🤌🏼

Mía

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

ELSKA þetta serum! Hef prófað alskonar serum en aldrei séð svona mikinn mun svona fljótt. Var með augnháralengingar í 2 ár, tók þau af og byrjaði strax að nota serumið. Þau eru orðin mun lengri og þykkari bara eftir 1/2 mánuð🩷

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Svart bond (lím)

Búin að haldast á í meira en viku, elskaaaa

Svart bond (lím)

Customer video review of Katla C curl

Þetta eru mínu uppahalds augnhár! Ég bara a þau alltaf til heima, cant live without them! 😍😍😍

Katla C curl

Customer photo review of Katrín

Þær eru geggjaðar!😍

Katrín

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Besta augnháraserum sem ég hef prófað! Lengri, þéttari og fallegri augnhár á nokkrum vikum! Ég elska líka að ég fæ engan roða eða þurrk í kringum augun eins og vill oft gerast 10/10 🌸💕

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Þetta augnhárserum hefur algjörlega farið fram úr öllum væntingum✨ Eftir nokkrar vikur urðu augnhárin mín bæði lengri og þykkari! lovelovelove🤩

Lash Serum | INTENSE

Customer photo review of Lash Serum | INTENSE

Svakalega ánægð með serumið sem lengir og þykkir hárin 🤩 nota ekki daglega lengur bara að viðhalda þeim :)

Lash Serum | INTENSE