Skip to main content
AHA + BHA Cleanser 200ml
AHA + BHA Cleanser 200ml
EMPTY DOM REMOVE PROTECTOR

AHA + BHA Cleanser 200ml

Húðgerð Olíukennd hud, Acne
Virkni Djuphreinsun, mattandi
Virk efni AHA, BHA
5.465 kr
Tax included.

EMPTY DOM REMOVE PROTECTOR
...
......
...

AHA + BHA Cleanser pH 4,2 — áhrifarík hreinsimjólk fyrir olíukennda, bólugjarna og Acne húðgerðir og einnig fyrir grófgerða/eldri húð með opnar/stórar húðholur.

Hreinsimjólkin inniheldur ávaxtasýrur sem hreinsa burt farða, óhreinindi og dauðar húðfrumur á áhrifaríkan hátt af yfirborði húðarinnar.

AHA + BHA hreinsimjólkin inniheldur blöndu af AHA glycolic, malic, citric og tartaric sýru og BHA salicylic sýru sem vinna fullkomnlega saman í baráttunni við opnar/stíflaðar húðholur, bólur og bakteríusýkingar (Acne) í húðinni. AHA sýrunar leysa upp dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar og opna fyrir stíflaðar húðholur. BHA salicylic sýran fer ennþá dýpra niður í húðholurnar með fituleysanlegum áhrifum og hreinsar upp stíflaðar húðholur og fílapensla með bakteríudrepandi eiginleikum.

Við reglulega noktun á AHA + BHA Cleanser öðlast húðin betra jafnvægi sem styður við náttúrulega endurnýjun og heilbrigði húðarinnar, opnar/stórar húðholur dragast saman og minnka með sýnilegum árángri.

Noktun: Dreifið mjólkinni vel yfir andlit, háls og bringu og hreinsið með léttum hringlaga hreyfingum í 3-5 mín, hreinsið síðan af með volgu vatni/þvottapoka og ljúkið hreinsun með andlitsvatni Purifying Tonic. *Hafa ber í huga að pH gildi vörunnar er 4,2 — ekki hafa mjólkina lengur á húðinni en 3-5 mín.

Vörunúmer: 4002