Skip to main content
🤎 Lífið er stutt en augnhárin þurfa ekki að vera það 🤎 Fáðu 15 % afslátt þegar þú skráir þig á póstlistann 🤎
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki
Deluxe byrjendapakki

Deluxe byrjendapakki

9.990 kr
Tax included.
  • 10 - 16 mm
  • 8 - 14 mm
  • Glært
  • Svart

ATH 

Þessi vara þolir alls ekki frost. Passið að velja ekki að fá sent í póstbox ef það kalt. Við berum ekki ábyrgð á því ef varan fer í póstbox og frýs. 


Deluxe byrjendapakkinn inniheldur allt sem þú þarft til þess að græja þín eigin augnhár heima á nokkrúm mínútum. Þessi pakki inniheldur vinsælu Mist augnhárin. Þau eru náttúrleg augnhár sem hægt er að byggja upp í meira elegant look með auka lagi af ásetningu. 

Þú getur valið um stærð 10 - 16 mm eða 8 - 14 mm.
Getur einni valið á milli þess að fá glært eða svart lím. 

Pakkinn inniheldur  : 

♥ 2 -1  Lash bond & sealant 
♥ Lash remover
♥ Applicator 
♥ Mist augnhár

LEIÐBEININGAR: 

Quick Lash augnhárin okkar með einfaldleika í huga þegar kemur að ásetningu og umhirðu. Ef hárin eru sett rétt á þá ættu þau að haldast vel í allt að 14 daga. 

Smelltu hér til þess að lesa leiðbeiningarnar. 

Algengar spurningar

Við mælum alltaf með því að kaupa þau augnhár sem þér líst vel á.

Við erum með myndir við öll augnhár svo þú getur áttað þig betur á hvaða týpur þú fílar.

Mist eru lang vinsælustu aunhárin, eftir þeim kemur Katla & Brimdís.


Getur keypt pakkan með 10,12,14 16 mm og með því getur þú fundið út hvaða stærðir henta þínu auga.

Engin augnumgjörð er eins, þau augu sem eru stór geta því auðveldlega notað 14 & 16 mm á meðan þeir sem eru með lítil augu vilja vera með 10 & 12 mm,

En fegurðin við þetta er að þú stjórnar því sjálf hvernig þú raðar þeim & hvað þú vilt.

Augnhárin okkar er 'DIY', sem þýðir að þú setur þau á þig sjálf heima.  Hárin ættu að haldast vel í 5-14 daga ef þú hugsar vel um þau og ef þau eru sett á rétt. 

Augnhárin eru hönnuð til þess að fara undir þín eigin augnhár og eru fullkomlega örugg til þess að vera á augunum þínum í nokkra daga. Þau eru sett á ofurfínt band og síðan raðað í klasa. Þegar þú hefur æft þig vel þá mun ferlið ekki taka þig meira en 5 mínútur!

Þú getur auðveldlega fjarlægt augnhárin heima þegar þér hentar og þau skemma ekki þín eigin augnhár. Betra verður það varla!

 

Hvernig?

Ferlið er eins auðvelt og það lítur út fyrir að vera.
Fylgdu þessum fjórum skrefum og vertu klár í vikuna framundan vopnuð glæsilegum augnhárum! ♡

Skref 1 

 

  • Þrífðu augun með hreinsi (notaðu hreinsi án olíu)
  • Brettu hárin þín með með brettara til þess að fá fallegri ásetningu 
  • Hallaðu þér upp fyrir framan spegil svo þú getir horft niður í spegillinn. Þetta hjálpar þér við að fá betri sýn upp undir augnháralínuna svo þú getur verið viss um að augnhárin séu að fara á réttan stað
  • Notaðu lausu höndina þína til að halda augnlokinu uppi ef þú átt erfitt með að sjá vel undir augnháralínuna

Skref 2 

Settu lítið magn af "Bond" undir þín náttúrlegu augnhár. Það er gott að "dúmpa" burstanum - ekki nota hann eins og maskara.

Pro tip: Þú getur líka sett smá af bond á sjálfar augnháralengingarnar. Kíktu á Instagram fyrir leiðbeiningar. 

Ekki setja of mikið magn af "bondinum" því þá eiga augnhárin til að klístrast. 


Skref 3


Settu Quick Lash augnhárin undir þín eigin augnhár,  1-2 mm frá vatnslínu (ekki snerta vatnslínuna). 

Augnhárin eru létt og þú ættir ekki að finna fyrir þeim. Ef þú finnur fyrir þeim þá er staðsetningin ekki rétt. Áður en þú notar "sealerinn" skaltu fjarlægja þau varlega og setja þau aftur á þar til að þú finnur ekki fyrir þeim og sitja þægilega á. 

Límið þornar ekki strax svo það er ekkert mál að fjarlægja ef þú hittir ekki á réttan stað.

Skref 4  


Til að festa augnhárin skaltu klemma þau með "applicator-num" eða klemmunni, fyrir öruggt hald. Settu aðeins sealer þar sem þú settir bondinn áður, til þess að festa betur og koma í veg fyrir klístur.   

Það er mikilvægt að klemma þétt og vel. Þegar þú ert búin að setja settið þitt á þá skaltu bíða í 5 mínútur og klemma aftur með klemmunni. 

Hér er stutt myndband sem sýnir ferlið vel. 


♥ Hreinsaðu appliactor-inn reglulega til að forðast leyfar af uppsöfnuðu bondi

Þetta skaltu forðast að gera


♥  Forðastu að bleyta augnhárin, bæði þín eigin og Quick Lashes. Ef þau blotna þá skaltu leyfa þeim að þorna (ekki snerta þau á meðan þau eru blaut) og endurstilla og innsigla með sealer þegar þau eru orðin þurr.

♥ Forðastu að nota olíubundnar vörur í kringum augnsvæðið þar sem það getur losað um augnhárin.

♥ Forðastu að snerta augnhárin og klemmdu þau niður á hverju kvöldi til þess að styðja að lengri endingartíma. 

♥ Ekki leika þér að augnhárunum. Það eru fituleifar á höndunum svo þú vilt forðast að fá fituna á augnhárin - það getur stytt endingartímann.  

♥ Eftir að þau hafa verið sett á skaltu ekki bleyta þau í sólarhring. Þú skalt reyna að gefa þeim tækifæri til þess að þorna náttúrulega. 

♥ Rétt eins og með hefðbundnar augnháralengingar -þá skaltu forðast mikinn hita fyrsta sólarhringinn.


♥ Forðastu að sofa á andlitinu. Það skerðir endingartíma augnháranna þar sem núningur og þrýstingur myndast. 

"Hárin mín fara með þegar ég tek Quick Lashes af. Hvað er það?"


Ekki hræðast! Náttúrulegu augnhárin okkar endurnýja sig daglega. Augnhár hafa 60-90 daga líftíma. Hvert einstakt augnhár gengur á sínum tíma, þannig að ef augnhárin virðast koma með augnhárunum þá skaltu ekki örvænta - það var einfaldlega kominn tími á endurnýjun.

 

"Ég fæ ekki augnhárin til að haldast að neinu viti, hvað get ég gert til að ná lengra haldi?"


Þegar þú setur Quick Lashes á í fyrsta skipti þá þarftu að gefa þessu smá tíma og þolinmæði.  Þú munt verða öruggari í ásetningaferlinu og á endanum mun þetta koma hjá þér.  Endingartíminn fer eftir þinni eftirmeðferð á þeim og hvernig þú hugsar um þau.

Fylgdu skrefunum okkar til þess að styðja að hámarks endingartíma. 

Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur einhverjar spurningar!

Við gefum okkur 1-3 daga til þess að fara með pakkan á pósthúsið. En oftast fara þeir samdagus úr húsi hjá okkur. Eftir það getur það tekið 1-5 hjá íslandspósti daga eftir hvar þú ert stödd á landinu.

Ef þú valdir að sækja þá er oftast hægt að sækja samdagus.

Customer Reviews

Based on 60 reviews
95%
(57)
3%
(2)
0%
(0)
0%
(0)
2%
(1)
K
Kristín Þóra Ólafsdóttir

Elska augnhárin frá La belle beauty

E
Elín Björk
Snilld

Algjör snilld þarf klárlega að fá mér fleiri

J
J.G.L.
Æðisleg vara !!!

Ákvað að splæsa i eitt sett, Gat ekki beðið eftir að prof þessa vöru, loksins þegar eg fekk hana þá fór eg beint i að setja augnhárin a mig, helt að þetta yrði eitthvað vesen en i raun var þetta minnsta malið, Auðvelt, fljótlegt og þæginlegt!

Það eru kominn 6 dagar síðan ég setti augnhárin a mig og þau eru enn pik föst og hafa ekki haggast!!!

Þetta er svo mikklu þægilegar og hagstæðara en að fa ser augnharalengingar 2-4 vikna fresti. For reglulega i augnharalengingar aður fyrr en þetta er svo mikklu mikklu betra !!!

Mæli með að þú splæsir í svona sett og prófar. Get lofað þvi að þu munt ekki sja eftir þvi !!!

T
Tinna Traustadóttir
Worth it

Keypti mér Deluxe starter kit til að prufa. Ég hef aldrei notað gerviaugnhár og hef því enga reynslu að setja þannig á mig. Smá byrjunarerfiðleikar en vá hvað þetta er í alvöru einfalt!

Er með náttúrulega mjög bein augnhár sem haldast ekki uppi með brettara og venjulegum maskara og lash lift virkar varla. Að geta sett svona á sig sjálf er svo mikill Game changer og gerir svo mikið fyrir sjálfstraustið!

H
Helena Tryggvadóttir

Svo auðvelt og fljótlegt að ég á erfitt með að koma í orð hversu mikil snilld þessi augnhár eru!