Skip to main content
Glært bond (lím)

Glært bond (lím)

2.150 kr
Tax included.

ATH 

Þessi vara þolir alls ekki frost. Passið að velja ekki að fá sent í póstbox ef það kalt. Við berum ekki ábyrgð á því ef varan fer í póstbox og frýs. 

Taktu augnhárin þín á næsta stig með þessu glæra bondi (lími). Þegar bondinn þornar verður hann alveg glær og sést því ekki neitt. Það gefur þetta náttúrulega útlit sem við erum allar að leitast eftir. 

La Belle Beauty Iceland™ Bondinn er nýji besti vinur þinn. Þessi latex- og formaldehyde-fría formúla tikkar í alla kassana þegar kemur að góðri næringu og undirbúning fyrir Quick Lash ásetningar. Hann er vatnsheldur, þornar fljótt og er mjög  auðveldur í notkun hvort sem þú ert byrjandi eða meistari í augnháralenginum. 

Þessi vatnshelda formúla þýðir að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af augnhárunum í ræktinni eða í sundi. Formúlan tryggir (ef notaður réttur) að allt haldist á sínum stað, sama hvað. 

La Belle beauty Iceland™ bondið okkar gefur þér hald í 5+ daga og er bæði vegan og cruelty free.

Endingartími bonds er 2-3 mánuðir eftir fyrstu opnun.

 

LEIÐBEININGAR: 

1. Settu örlítið magn af Bond við rótina á náttúrulegu augnhárunum þínum. Ekki greiða eins og maskara. Þú getur einnig sett bond á endann á Quick Lash augnhárunum til þess að fá betri útkomu.

2. Raðaðu klasa af Quick Lash við rótina á augnhárunum þínum. Fín fjarlægð er um 1mm frá vatnslínunni. 

Ath: Það er allt í lagi að endurraða hárum ef þú ert ekki nógu sátt með fyrstu tilraun. Bondinn þornar ekki strax. 

3. Þegar þú ert ánægð með uppröðunina þá skaltu klemma augnhárin með   Lash Applicator til þess að halda þeim á réttum stað.

4. Þegar bondinn er þornaður, þá skaltu setja sealant sem lokaskref á rútínu. Hann fer við rótina á augnhárununum. Sealant fjarlægir klístur eftir bondinn og hjálpar við að halda öllu á sínum stað og lengur.  

Pairs well with