Shipping policy
Sendingaskilmálar
AFGREIÐSLUTÍMI
Allar pantanir sem berast fyrir kl. 12 á virkum dögum fara samdægurs á pósthús. Pantanir sem berast eftir kl. 12 fara af stað næsta virka dag. Í einstaka tilfellum getur afgreiðsla tekið allt að 2 virka daga. Þú færð rakningarnúmer um leið og sendingin er farin frá okkur.
Ef kaupandi hefur valið að fá sendingu með Póstinum þá ber La belle beauty ekki ábyrgð á afhendingartíma sendingarinnar.
Þegar sending er komin frá okkur til póstsins tekur það frá 1 - 3 daga.
Á höfuðborgarsvæðinu berst hún mjög oft daginn eftir.
ÓSÓTTAR PANTANIR
Hafi vara ekki verið sótt innan við 6 mánuði eftir að hún er tilbúin til afhendingar fer hún aftur í sölu.
ÓSÓTTAR SENDINGAR
Ef sending er ekki sótt innan þess frests sem Pósturinn eða Dropp gefur og hún berst aftur til okkar, greiðir viðskiptavinur fyrir nýja sendingu. Sendingarkostnaður upphaflegu pöntunarinnar er ekki endurgreiddur.
Ef ekki er óskað eftir nýrri sendingu innan 14 daga frá því að hún berst aftur til okkar er pöntunin endurgreidd að frádregnum sendingarkostnaði.
TÝNDAR EÐA STOLNAR SENDINGAR
La belle beauty Iceland ber ekki ábyrgð á sendingum sem týnast eða er stolið eftir að staðfest hefur verið að þær hafi verið afhentar á það heimilisfang sem gefið var upp í pöntuninni. La belle beauty Iceland ber heldur ekki ábyrgð á pöntunum sem eru ranglega afhentar eða týnast vegna rangra sendingarupplýsinga sem gefnar voru upp við greiðslu.
Vinsamlegast farðu vel yfir heimilisfangið áður en þú gengur frá pöntun. Ef heimilisfangið í staðfestingarpóstinum er rangt skaltu hafa samband við okkur sem fyrst svo við getum leiðrétt það. Eftir að pöntun hefur verið send er ekki hægt að breyta heimilisfanginu.
Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur ef sending berst aftur til okkar vegna rangs heimilisfangs, og slíkar sendingar geta borið umsýslugjald.
