{"product_id":"longevity-care-serum-30ml","title":"LONGEVITY CARE Serum 30ml","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLONGEVITY CARE\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eer lúxus húðumhirðulína frá\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cstrong\u003eJANSSEN COSMETICS\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eþar sem nýjustu vísindi og öflug virk efni vinna saman að því að styðja við langlífi húðfrumna og varðveita styrk, lífskraft og unglegt yfirbragð húðarinnar. Markviss umhirða sem hjálpar húðinni að halda í náttúrulegan ljóma, þéttleika og seiglu með tímanum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLONGEVITY CARE Serum\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eleggur grunninn að allri Longevity Care húðumhirðunni. Háþróuð samsetning þess vinnur markvisst að þeim líffræðilegu ferlum sem hafa áhrif á öldrun húðarinnar og hjálpar henni að endurheimta lífskraft, styrk og ferskara yfirbragð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eClotho, ashwagandha-rótarþykkni og Evergreen styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar, styrkja varnarhjúp hennar og auka mótstöðukraft gegn daglegu álagi og umhverfisáhrifum. Rakagefandi efni sem líkjast náttúrulegum rakabindandi efnum húðarinnar veita mikinn og langvarandi raka, slétta áferð hennar og draga úr ásýnd fínna lína.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLétt serumið smýgur hratt inn í húðina og undirbýr hana fyrir umhirðuna sem á eftir fylgir. Húðin virðist strax fyllri, ferskari og ljómandi en með reglulegri notkun styrkist varnarhjúpur hennar og stinnleiki, lífskraftur og viðnámsþróttur aukast.\u003c\/p\u003e\n\u003ch6\u003eHelstu eiginleikar\u003c\/h6\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eStyður við langlífi og endurnýjun húðfrumna\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eStyrkir varnarhjúp húðarinnar\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eDregur úr áhrifum daglegs umhverfisálags\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eVeitir mikinn og langvarandi raka\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSléttir áferð og dregur úr ásýnd fínna lína\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eEykur lífskraft og ljóma\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003eHentar öllum húðgerðum, sérstaklega húð sem er þreytt, rakaþurr eða hefur misst styrk, fyllingu og ljóma.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBerið á hreina húð að morgni og\/eða kvöldi. Berið síðan á augnkrem og andlitskrem. Einnig má nota serumið sem kúrameðferð þegar húðin þarfnast aukins lífskrafts og ferskleika.\u003c\/p\u003e\n\u003ch6\u003eHelstu virku innihaldsefni\u003c\/h6\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eClotho – styður við endurnýjun og langlífi húðfrumna\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eAshwagandha-rótarþykkni – styrkir varnarhjúp og mótstöðukraft húðarinnar\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eEvergreen – styður við myndun Sirt-1 og hjálpar til við að draga úr sykrun kollagens\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eNíasínamíð – styrkir varnarhjúp og rakabirgðir húðarinnar\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSakkaríðísómerat – sykrusamband sem líkist náttúrulegum rakabindandi efnum húðarinnar\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eLöng, stutt og krosstengd hýalúrónsýra – veita raka á mismunandi stigum\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"janssen cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53110660235584,"sku":null,"price":23210.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/12030-Longevity-Care-Serum-Comp-1-600x600.webp?v=1788794479","url":"https:\/\/labellebeauty.is\/products\/longevity-care-serum-30ml","provider":"La belle beauty Iceland","version":"1.0","type":"link"}