{"product_id":"ampulu-adventu-dagatal-2026","title":"Ampúlu Aðventu Dagatal 2026","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eJANSSEN COSMETICS aðventudagatalið\u003c\/strong\u003e er dásamleg leið til þess að hleypa smá auka birtu inn í skammdegið og njóta aðventunnar enn frekar þar sem hver dagur verður dekurdagur. Nærandi niðurtalning til jóla með fullkomlega samsettum ampúlukúr sem svíkur engan.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e25 sérvaldar ampúlur í 24 daga meðferð sem gefur húðinni ríkulegan raka, sléttari áferð og geislandi ljóma fyrir hátíðirnar.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVinsæla ampúlujóladagatalið frá JANSSEN COSMETICS sækir í ár innblástur í litadýrð norðurljósanna. Í glæsilegum umbúðum leynast 25 sérvaldar ampúlur sem mynda 24 daga húðmeðferð þar sem mismunandi ampúlur vinna saman að því að endurnæra húðina, draga úr þreytumerkjum, auka rakafyllingu og bæta þéttleika hennar. Dag frá degi fær húðin markvissa meðferð og sérstaka dekurstund í aðdraganda jólanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDagatalið er gefið út í takmörkuðu upplagi á hverju ári og býður viðskiptavinum upp á einstakan 24 daga ampúlukúr á frábæru jólatilboði og er nú þegar orðið ómissandi partur af aðventunni fyrir marga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAmpúlur JANSSEN COSMETICS innihalda virk efni í háum styrk, skömmtuð í glerampúlur sem varðveita gæði innihaldsins fram að notkun. Allt innihald hverrar ampúlu er ætlað í eina meðferð og er borið beint á hreina húð, áður en aðrar húðvörur eru notaðar. Gott er að hella um helmingi í lófann í einu og bera jafnt á húðina með léttum klappandi eða þrýstandi hreyfingum á meðan efnin ganga niður í húðina. Síðan er afgangurinn borinn á með sama hætti.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSérvaldar ampúlur í hverjum glugga –\u003c\/strong\u003e \u003cstrong\u003eRöðin er vandlega úthugsuð til að nýta eiginleika þeirra sem best.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKúrinn hefst á \u003cstrong\u003eHyaluron Fluid\u003c\/strong\u003e sem fyllir húðlögin af nauðsynlegum raka og eykur á flutningsleiðir virkra efna niður húðina. Því meiri raki sem er í húðinni því betri verður upptaka virkra efna. Öflug andoxunarefni eiga nú greiða boðleið og húðin er orðin vel móttækileg fyrir áframhaldandi meðferð. \u003cstrong\u003eStem\u003c\/strong\u003e \u003cstrong\u003eCell Fluid\u003c\/strong\u003e fylgir á eftir með stuðningi við náttúrulega endurnýjun húðarinnar og sléttari áferð. Því næst kemur einn af hápunktum kúrsins, \u003cstrong\u003eBrilliance Shine Elixir\u003c\/strong\u003e. Þessi lúxusampúla sameinar húðsléttandi Matrixyl™ Synthe’6™ peptíð, þykkni úr persnesku silkitré og rakagefandi hyaluronsýru. Hún dregur úr þreytumerkjum og ásýnd fínna lína og gefur húðinni ferskara og úthvíldara yfirbragð. Meðferðin með henni er endurtekin yfir aðventuna og tengir þannig saman ólíka hluta kúrsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVita X Power Fluid\u003c\/strong\u003e tekur síðan við með öflugri andoxunarvörn frá astaxanthíni og C-vítamíni, áður en \u003cstrong\u003eMarine Collagen Fluid\u003c\/strong\u003e veitir húðinni raka og sýnileg þéttandi áhrif með rakabindandi sjávarkollageni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁ seinni hluta kúrsins vinnur \u003cstrong\u003eAnti-Wrinkle Booster\u003c\/strong\u003e að sléttari húð með 3-D lifting áhrifum og langvarandi rakagjöf. \u003cstrong\u003eRadiant Skin Fluid\u003c\/strong\u003e eykur síðan birtu og ljóma húðarinnar þegar nær dregur hátíðunum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSíðustu dagana fyrir jól veitir \u003cstrong\u003eBi-Phase Skin Recovery\u003c\/strong\u003e nærandi og endurnærandi meðferð. \u003cstrong\u003eEye Flash Fluid\u003c\/strong\u003e veitir húðinni í kringum augun raka, sléttir fínar línur og dregur úr þrota svo augnsvæðið fær ferskara og úthvíldara yfirbragð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTvöfaldur gluggi á aðfangadag!\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁ bak við síðasta gluggann bíða \u003cstrong\u003eMarine Collagen Fluid og Vita X Power Fluid\u003c\/strong\u003e í tvöfaldri mini-booster ampúlumeðferð. Ampúlurnar eru bornar á húðina hvor á eftir annarri og sameina rakagjöf, þéttandi áhrif og öfluga andoxunarvörn með tvöfaldri virkni. Glæsileg lokameðferð sem innsiglar kúrinn og gefur húðinni einstaka fyllingu og ljóma fyrir aðfangadagskvöld.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGjafafegurð innblásin af norðurljósunum….\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDjúpur blágrænn litur, silfrað glit og upphleypt merki prýða dagatalið, sem opnast líkt og bók. Falleg aðventugjöf fyrir þann sem kann að meta vandaðar húðvörur og sýnilegan árangur eða dekurgjöf sem þú leyfir þér að njóta í desember.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eDagatalið inniheldur 25 ampúlur og ampúluopnara sem fylgir með í fyrsta glugg\u003c\/strong\u003eanum.\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67844226515264,"sku":null,"price":12900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/magnific_Composing_3-1_edited-scaled.webp?v=1792692196","url":"https:\/\/labellebeauty.is\/products\/ampulu-adventu-dagatal-2026","provider":"La belle beauty Iceland","version":"1.0","type":"link"}