{"product_id":"epigenetic-glow-duo","title":"Epigenetic Glow Duo","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEpigenetic Glow Duo – tímalaus fegurð og geislandi ljómi\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHáþróuð virkni gegn öldrunareinkennum og samstundis meiri húðljómi. Epigenetic Serum og Sensational Glow Cream sameina krafta sína í öflugu tvíeyki sem hjálpar húðinni að viðhalda unglegu yfirbragði með háþróaðri epigenetic tækni. \u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eViðgerðarferli og varnarviðbragð húðfrumna er glætt nýrri orku sem styrkir mótstöðuafl og eykur lífsþrótt sem skilar af sér lengri líftíma húðfrumna.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið það fær húðin aukna seiglu sem hægir á náttúrulegu öldrunarferli og hrörnun líkt og tíminn standi í stað!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEpigenetic Serum vinnur gegn áhrifum ytra álags á húðina og styður við mótstöðu hennar, á meðan Sensational Glow Cream eykur rakafyllingu og gefur yfirborðinu sléttari ásýnd. Saman mæta vörurnar þörfum húðar sem farin er að sýna fínar línur, rakaþurrk og minnkandi ljóma — falleg gjöf fyrir húðina og dekur til að njóta á hverjum degi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSettið kemur í fallegum gjafapoka frá Janssen Cosmetics.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eInniheldur 1x Epigenetic Serum 10 ml og 1x Sensational Glow Cream 20 ml.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEpigenetic Serum · 10 ml\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSérhæft serum sem byggir á epigenetískri tækni til að vinna gegn sýnilegum öldrunareinkennum. Kjarninn í formúlunni er virkt efni úr blómum Calendula officinalis sem hjálpar til við að draga úr epigenetískum breytingum af völdum umhverfisáhrifa og styður við lífsþrótt og mótstöðu húðfrumna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHyaluronsýra og Saccharide Isomerate bæta rakabindingu húðarinnar og hjálpa henni að varðveita raka. Húðin fær aukna mýkt og rakafyllingu sem sléttir úr fínum línum á yfirborði húðarinnar og minnkar umfang á dýpri línum sem undirstrikar unglegt yfirbragð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSensational Glow Cream · 20 ml\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSensational Glow Cream er eitt af söluhæstu kremum JANSSEN COSMETICS og fylgir með í hátíðarútgáfu í 20ml túpu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSensational Glow Cream er 24 stunda krem sem veitir húðinni ríkulega rakagjöf og gefur henni samstundis ferskara, jafnara og ljómandi yfirbragð. Tvöföld hýaluronsýra veitir húðinni djúpvirkandi rakagjöf og fyllingu á meðan Soft Focus Pigments fylla uppí yfirborðslínur og gefa húðinni fallegan, náttúrulegan ljóma sem endurkasta birtu þannig húðin fær enn sléttari áferð. Þörungaþykkni úr Indlandshafi styður við sléttari og jafnari húðáferð. Equal Refining Complex stuðlar einnig að auknu jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar, dregur úr sýnileika húðhola og óæskilegum olíuglans með sampili aloe vera og allantoin sem sefa roða og hlúa að húðinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið reglulega notkun fínpússast áferð og yfirbragð húðarinnar og rannsóknir sýna fram á virkni þar sem stórar og opnar húðholur minnka og dragast saman um allt að 16% og dregið hefur úr olíuglans um allt að 21,7% eftir 28daga notkun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBerið Epigenetic Serum á hreina húð yfir andlit kvölds og morgna og nuddið mjúklega inn. Berið síðan Sensational Glow Cream yfir andlit, háls og bringu.\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67886442873152,"sku":null,"price":8466.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/EpiGlowDuo26vef.webp?v=1793109699","url":"https:\/\/labellebeauty.is\/en\/products\/epigenetic-glow-duo","provider":"La belle beauty Iceland","version":"1.0","type":"link"}