{"title":"Janssen cosmetics","description":"","products":[{"product_id":"solar-tilbod","title":"Sólar tilboð!","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eGlæsilegt Sólar-Kit frá Janssen Cosmetics inniheldur SPF 50 og After Sun og kemur í rúmgóðri snyrtitösku með fallegum Janssen Cosmetics blævæng - fullkomið í ferðalagið!\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSPF 50 ANTI-AGEING SÓLARVÖRN FYRIR ANDLIT OG LÍKAMA\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSólarvörn er eitt það mikilvægasta sem við getum notað til þess að vernda húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar, sólarskemmdum og ótímabærri öldrun húðarinnar hvort sem er á ströndinni, skíðaferðalögum, útiveru eða daglegu amstri og ætti að vera hluti af húðumhirðu allan ársins hring.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHigh Protection Sun Care SPF 50 sameinar fullkomna blöndu af sólavörn og umönnun fyrir húðina í einni vöru. Létt en jafnframt áhrifarík formúla veitir húðinni hámarks vörn gegn UVA og UVB geislum með verndandi eiginleikum gegn sólarskemmdum, litabreytingum og ótímabærri öldrun húðarinnar. Hentar öllum húðgerðum, þá sérstaklega viðkvæmum húðgerðum.\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eVörn gegn UVA og UVB geislum\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eFyrirbyggir sólarskemmdir af völdum sólbruna\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eFyrirbyggir litabletti\/breytingar af völdum sólargeisla\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmum\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eLétt formúla sem smýgur hratt niður í húðina\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eRakagefandi formúla sem getur komið í staðinn fyrir dagkrem yfir sumartímann\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNoktun:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eBerið ríkulegt magn á húðina c.a. 30 mín áður en farið er í sólarljós, bætið á eftir þörfum yfir daginn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHelstu innihaldsefni:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eHyaluronic Sýra, Ectoin®\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eAfter Sun frá Janssen Cosmetics \u003c\/strong\u003eer fullkomið líkamskrem eftir sólríka daga, sund og útiveru.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKælandi formúlan gefur húðinni samstundis létti með græðandi áhrifum, hefur djúpnærandi virkni og smýgur fljótt niður húðina og fyllir á tóma rakatanka sem gefur húðinni dásamlega mýkt og vellíðan. Janssen Cosmetics After Sun hefur einnig einstaklega verndandi áhrif og eflir náttúrulegar varnir húðarinnar gegn sólarskemmdum, ótímabærri öldrun og öðrum húðskemmdum sem geta myndast við sólbruna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHúðin verður jafnari og fær fallegri lit með sólkysstum ljóma.\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eEr kælandi, græðandi og gefur húðinni mýkt og vellíðan\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSmýgur fljótt niður í neðstu húðlögin\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHefur verndandi áhrif og eflir náttúrulegar varnir húðarinnar gegn ótímabærri öldrun og öðrum húðskemmdum\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHelstu innihaldsefni:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eAloe Vera (kælandi og græðandi), Alpha bisabolol (dregur úr bólgum og roða)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52747489968448,"sku":null,"price":8067.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/674485329_10237267875570443_5378004697423501786_n.jpg?v=1783437109"},{"product_id":"longevity-care-cream-50ml","title":"LONGEVITY CARE Cream 50ml","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLONGEVITY CARE Cream\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eer hágæða dag- og næturkrem sem hjálpar húðinni að viðhalda styrk sínum, mýkt og náttúrulegum ljóma með tímanum. Silkimjúk áferðin fellur vel að húðinni og veitir henni ríkulega, endurnýjandi og verndandi umhirðu án þess að virka þung.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ hjarta formúlunnar eru Clotho, ashwagandha-rótarþykkni og resveratrol sem styðja við endurnýjun húðarinnar, styrkja varnarhjúp hennar og vernda gegn daglegu umhverfisálagi. Natural Contour Lifting úr stráblómi og Majestic Beauty, frumuræktarþykkni úr edelweiss, styðja við þéttari húð og betur mótaðar andlitslínur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSamsetning hýalúrónsýru í mismunandi sameindastærðum og rakagefandi sykrusambanda veitir húðinni mikinn og langvarandi raka. Húðin verður mýkri, sléttari og fyllri, með ferskara og ljómandi yfirbragði dag frá degi.\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003eHelstu eiginleikar\u003c\/h3\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eStyður við langlífi og endurnýjun húðfrumna\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eStyrkir varnarhjúp og mótstöðukraft húðarinnar\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eVeitir mikinn og langvarandi raka\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eStyður við aukinn þéttleika og betur mótaðar andlitslínur\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eMýkir og sléttir yfirborð húðarinnar\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eEykur náttúrulegan ljóma\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003eHentar húð sem sýnir öldrunareinkenni, skort á þéttleika, raka eða ljóma og öllum sem vilja styðja við heilbrigði og lífskraft húðarinnar til lengri tíma.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBerið á hreina húð að morgni og kvöldi eftir serum og augnkrem.\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003eHelstu virku innihaldsefni\u003c\/h3\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eClotho – styður við endurnýjun og langlífi húðfrumna\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eAshwagandha-rótarþykkni – styrkir varnarhjúp húðarinnar og eykur náttúrulegan ljóma\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eResveratrol – öflugt andoxunarefni sem ver húðina gegn umhverfisálagi\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eNatural Contour Lifting – styður við þéttleika og betur mótað yfirbragð\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eMajestic Beauty – frumuræktarþykkni úr edelweiss sem styrkir húðbygginguna\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHýalúrónsýra og sakkaríðísómerat – veita mikinn og langvarandi raka\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53110429679936,"sku":null,"price":20060.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/12010-Longevity-Care-Cream-Comp-1.webp?v=1788785841"},{"product_id":"men-daily-duo-gjafasett","title":"MEN – Daily Duo Gjafasett","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGjafasett fyrir hann\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTvær vörur úr MEN línu Janssen Cosmetics sem sameina milda hreinsun, þægilega notkun og fágaðan herrailm.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMen’s Daily Duo inniheldur Active Shower Gel fyrir hár og líkama og Long Lasting Deodorant sem veitir langvarandi vörn gegn svitalykt. Falleg jólagjöf sem nýtist á hverjum degi, í glæsilegum gjafapoka frá Janssen Cosmetics.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eActive Shower Gel · 200 ml\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eFrískandi sturtugel fyrir hár og líkama sem skilur eftir hreina og ferska tilfinningu án þess að þurrka húðina. Mild hreinsiefni úr kókos og sykrum hreinsa húð og hár, geláferðin myndar mjúka froðu í snertingu við vatn.\u003cbr\u003eÞægileg 2-in-1 vara með ferskum herrailmi þar sem ferskar sítrusnótur blandast appelsínublómi, jasmín og krydduðum sandelviði í þægilegum ilmi sem fullkomnar sturtuna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLong Lasting Deodorant · 30 g\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eMildur og áhrifaríkur svitalyktareyðir sem viðheldur ferskleika frá morgni til kvölds. Alkóhóllaus formúlan rennur mjúklega yfir húðina og vinnur gegn svitalykt. Þægilegt stifti til daglegrar notkunar með mildum, ferskum herrailmi.\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67749375148352,"sku":null,"price":3570.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/MENshowerDeo26.webp?v=1791804072"},{"product_id":"skin-energizer-for-men-gjafakassi","title":"Skin Energizer for MEN - Gjafakassi","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLúxusgjafasett fyrir herra\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFærðu honum smá lúxus í jólagjöf með húðvörum frá Janssen Cosmetics.\u003c\/strong\u003e Skin Energizer for MEN sameinar þrjár vörur úr MEN-línunni í glæsilegum gjafakassa fyrir hreina, mjúka og vel nærða húð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSettið er sérstaklega samsett fyrir jólin og fæst nú á frábæru jólatilboði í takmörkuðu magni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGjafakassinn inniheldur:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePurifying Wash \u0026amp; Shave · 75 ml\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eAndlitshreinsir og raksápa í einni vöru. Notaður sem daglegur hreinsir eða þeyttur upp með vatni í mjúka, kremkennda froðu fyrir rakstur. Inniheldur panþenól sem róar húðina og dregur úr ertingu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e24\/7 Skin Energizer · 50 ml\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eRakagefandi andlitskrem sem vinnur gegn öldrunareinkennum og gefur húðinni mýkri og sléttari áferð. Kremið veitir langvarandi raka, dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka og smýgur hratt inn í húðina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEnergizing Eye Roll-On · 15 ml\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eFrískandi augngel með kælandi nuddkúlu sem hressir þreytt augnsvæði. Gefur raka og dregur úr þrota, dökkum baugum og ásýnd fínna lína í kringum augun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÞrjár vörur í fullri stærð, einn glæsilegur gjafakassi – tilbúinn undir jólatréð.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67749376721216,"sku":null,"price":13566.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/Men.energ_.gjafasett26.webp?v=1791804220"},{"product_id":"ampulu-adventu-dagatal-2026","title":"Ampúlu Aðventu Dagatal 2026","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eJANSSEN COSMETICS aðventudagatalið\u003c\/strong\u003e er dásamleg leið til þess að hleypa smá auka birtu inn í skammdegið og njóta aðventunnar enn frekar þar sem hver dagur verður dekurdagur. Nærandi niðurtalning til jóla með fullkomlega samsettum ampúlukúr sem svíkur engan.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e25 sérvaldar ampúlur í 24 daga meðferð sem gefur húðinni ríkulegan raka, sléttari áferð og geislandi ljóma fyrir hátíðirnar.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVinsæla ampúlujóladagatalið frá JANSSEN COSMETICS sækir í ár innblástur í litadýrð norðurljósanna. Í glæsilegum umbúðum leynast 25 sérvaldar ampúlur sem mynda 24 daga húðmeðferð þar sem mismunandi ampúlur vinna saman að því að endurnæra húðina, draga úr þreytumerkjum, auka rakafyllingu og bæta þéttleika hennar. Dag frá degi fær húðin markvissa meðferð og sérstaka dekurstund í aðdraganda jólanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDagatalið er gefið út í takmörkuðu upplagi á hverju ári og býður viðskiptavinum upp á einstakan 24 daga ampúlukúr á frábæru jólatilboði og er nú þegar orðið ómissandi partur af aðventunni fyrir marga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAmpúlur JANSSEN COSMETICS innihalda virk efni í háum styrk, skömmtuð í glerampúlur sem varðveita gæði innihaldsins fram að notkun. Allt innihald hverrar ampúlu er ætlað í eina meðferð og er borið beint á hreina húð, áður en aðrar húðvörur eru notaðar. Gott er að hella um helmingi í lófann í einu og bera jafnt á húðina með léttum klappandi eða þrýstandi hreyfingum á meðan efnin ganga niður í húðina. Síðan er afgangurinn borinn á með sama hætti.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSérvaldar ampúlur í hverjum glugga –\u003c\/strong\u003e \u003cstrong\u003eRöðin er vandlega úthugsuð til að nýta eiginleika þeirra sem best.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKúrinn hefst á \u003cstrong\u003eHyaluron Fluid\u003c\/strong\u003e sem fyllir húðlögin af nauðsynlegum raka og eykur á flutningsleiðir virkra efna niður húðina. Því meiri raki sem er í húðinni því betri verður upptaka virkra efna. Öflug andoxunarefni eiga nú greiða boðleið og húðin er orðin vel móttækileg fyrir áframhaldandi meðferð. \u003cstrong\u003eStem\u003c\/strong\u003e \u003cstrong\u003eCell Fluid\u003c\/strong\u003e fylgir á eftir með stuðningi við náttúrulega endurnýjun húðarinnar og sléttari áferð. Því næst kemur einn af hápunktum kúrsins, \u003cstrong\u003eBrilliance Shine Elixir\u003c\/strong\u003e. Þessi lúxusampúla sameinar húðsléttandi Matrixyl™ Synthe’6™ peptíð, þykkni úr persnesku silkitré og rakagefandi hyaluronsýru. Hún dregur úr þreytumerkjum og ásýnd fínna lína og gefur húðinni ferskara og úthvíldara yfirbragð. Meðferðin með henni er endurtekin yfir aðventuna og tengir þannig saman ólíka hluta kúrsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVita X Power Fluid\u003c\/strong\u003e tekur síðan við með öflugri andoxunarvörn frá astaxanthíni og C-vítamíni, áður en \u003cstrong\u003eMarine Collagen Fluid\u003c\/strong\u003e veitir húðinni raka og sýnileg þéttandi áhrif með rakabindandi sjávarkollageni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁ seinni hluta kúrsins vinnur \u003cstrong\u003eAnti-Wrinkle Booster\u003c\/strong\u003e að sléttari húð með 3-D lifting áhrifum og langvarandi rakagjöf. \u003cstrong\u003eRadiant Skin Fluid\u003c\/strong\u003e eykur síðan birtu og ljóma húðarinnar þegar nær dregur hátíðunum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSíðustu dagana fyrir jól veitir \u003cstrong\u003eBi-Phase Skin Recovery\u003c\/strong\u003e nærandi og endurnærandi meðferð. \u003cstrong\u003eEye Flash Fluid\u003c\/strong\u003e veitir húðinni í kringum augun raka, sléttir fínar línur og dregur úr þrota svo augnsvæðið fær ferskara og úthvíldara yfirbragð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTvöfaldur gluggi á aðfangadag!\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁ bak við síðasta gluggann bíða \u003cstrong\u003eMarine Collagen Fluid og Vita X Power Fluid\u003c\/strong\u003e í tvöfaldri mini-booster ampúlumeðferð. Ampúlurnar eru bornar á húðina hvor á eftir annarri og sameina rakagjöf, þéttandi áhrif og öfluga andoxunarvörn með tvöfaldri virkni. Glæsileg lokameðferð sem innsiglar kúrinn og gefur húðinni einstaka fyllingu og ljóma fyrir aðfangadagskvöld.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGjafafegurð innblásin af norðurljósunum….\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDjúpur blágrænn litur, silfrað glit og upphleypt merki prýða dagatalið, sem opnast líkt og bók. Falleg aðventugjöf fyrir þann sem kann að meta vandaðar húðvörur og sýnilegan árangur eða dekurgjöf sem þú leyfir þér að njóta í desember.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eDagatalið inniheldur 25 ampúlur og ampúluopnara sem fylgir með í fyrsta glugg\u003c\/strong\u003eanum.\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67844226515264,"sku":null,"price":10965.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/magnific_Composing_3-1_edited-scaled.webp?v=1792692196"},{"product_id":"energizing-2-phase-oil-serum-30ml","title":"ENERGIZING 2-Phase Oil Serum | 30ml","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNæring, raki og ljómi í tveimur fösum\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLúxus tvífasa olíuserum með kavíarþykkni og perludufti sem veitir þurri húð ríkulega næringu og raka. Húðin verður silkimjúk og sléttari með ferskara yfirbragði og fallegum ljóma.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÁ sérstöku jólatilboði – falleg gjöf og kærkomin viðbót við daglega húðmeðferð yfir vetrarmánuðina.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eCaviar 2-Phase Oil Serum sameinar næringarríkar olíur og öfluga rakagjöf í formúlu sem veitir húðinni aukna mýkt, næringu og vernd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOlíufasinn inniheldur arganolíu og squalane sem mýkja húðina, styrkja varnarhjúp hennar og draga úr rakatapi. Í rakafasanum vinna kavíarþykkni og perluduft með Saccharide Isomerate, glýseríni og hyaluronsýru að öflugri rakagjöf. Saman stuðla fasarnir að fyllri og líflegri ásýnd húðarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHelstu eiginleikar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eVeitir þurri og rakaþurri húð næringu og langvarandi raka.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eStyrkir varnarhjúp húðarinnar og verndar gegn rakatapi.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSléttir áferð húðarinnar og gefur henni silkimjúka viðkomu.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eEykur ljóma og frískar upp á þreytt yfirbragð.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHristið vel fyrir notkun svo fasarnir blandist saman. Setjið 2–3 dropa í lófann og berið á hreina húð á andliti, hálsi og bringu kvölds og morgna. Látið serumið ganga inn í húðina og ljúkið með því kremi frá Janssen Cosmetics sem þið notið venjulega, ef þörf er á.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSerumið hentar sérstaklega vel með Caviar Luxury Cream þegar húðin þarfnast ríkulegrar næringar. Einnig má nota það eitt og sér eftir ástandi og þörfum húðarinnar.\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67844238213440,"sku":null,"price":5202.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/2-phase-insta.webp?v=1792692409"},{"product_id":"caviar-luxury-cream-20ml","title":"Caviar Luxury Cream 20ml","description":"\u003cp\u003eÞrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Veldu á milli Caviar Luxury Cream, Vitaforce C Cream eða Sensational Glow Cream, sem hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eCaviar Luxury Cream\u003c\/strong\u003e er nærandi lúxuskrem með kavíarþykkni sem endurvekur þurra og þreytta húð. Það gefur húðinni fyllingu, dregur úr sýnilegum línum og hrukkum og skilur hana eftir silkimjúka og ljómandi. Ríkuleg áferðin bráðnar inn í húðina og veitir strax þægilega mýkt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKavíarþykkni, ríkt af amínósýrum, vítamínum og lípíðum, nærir húðina og styður náttúrulega endurnýjun hennar. Virk efni styðja við myndun próteina sem styrkja tengingu húðlaganna og dregur úr dýpt hrukkna. Hyaluronsýra með löngum og stuttum keðjum eykur rakastig og fyllingu, á meðan Saccharide Isomerate bindur raka í húðinni og viðheldur honum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtkoman er sléttari og þéttari húð með ferskara yfirbragði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSérlega góður kostur fyrir þurra húð sem þarfnast aukinnar næringar og sýnir merki um minnkandi þéttleika.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun:\u003c\/strong\u003e Berið á hreina húð í andliti, á hálsi og bringu kvölds og morgna og nuddið mjúklega inn\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67886397948224,"sku":null,"price":3111.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/AI_Caviar-luxury-Cream-with-texture-1-scaled.webp?v=1793108850"},{"product_id":"epigenetic-glow-duo","title":"Epigenetic Glow Duo","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEpigenetic Glow Duo – tímalaus fegurð og geislandi ljómi\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHáþróuð virkni gegn öldrunareinkennum og samstundis meiri húðljómi. Epigenetic Serum og Sensational Glow Cream sameina krafta sína í öflugu tvíeyki sem hjálpar húðinni að viðhalda unglegu yfirbragði með háþróaðri epigenetic tækni. \u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eViðgerðarferli og varnarviðbragð húðfrumna er glætt nýrri orku sem styrkir mótstöðuafl og eykur lífsþrótt sem skilar af sér lengri líftíma húðfrumna.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið það fær húðin aukna seiglu sem hægir á náttúrulegu öldrunarferli og hrörnun líkt og tíminn standi í stað!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEpigenetic Serum vinnur gegn áhrifum ytra álags á húðina og styður við mótstöðu hennar, á meðan Sensational Glow Cream eykur rakafyllingu og gefur yfirborðinu sléttari ásýnd. Saman mæta vörurnar þörfum húðar sem farin er að sýna fínar línur, rakaþurrk og minnkandi ljóma — falleg gjöf fyrir húðina og dekur til að njóta á hverjum degi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSettið kemur í fallegum gjafapoka frá Janssen Cosmetics.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eInniheldur 1x Epigenetic Serum 10 ml og 1x Sensational Glow Cream 20 ml.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEpigenetic Serum · 10 ml\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSérhæft serum sem byggir á epigenetískri tækni til að vinna gegn sýnilegum öldrunareinkennum. Kjarninn í formúlunni er virkt efni úr blómum Calendula officinalis sem hjálpar til við að draga úr epigenetískum breytingum af völdum umhverfisáhrifa og styður við lífsþrótt og mótstöðu húðfrumna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHyaluronsýra og Saccharide Isomerate bæta rakabindingu húðarinnar og hjálpa henni að varðveita raka. Húðin fær aukna mýkt og rakafyllingu sem sléttir úr fínum línum á yfirborði húðarinnar og minnkar umfang á dýpri línum sem undirstrikar unglegt yfirbragð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSensational Glow Cream · 20 ml\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSensational Glow Cream er eitt af söluhæstu kremum JANSSEN COSMETICS og fylgir með í hátíðarútgáfu í 20ml túpu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSensational Glow Cream er 24 stunda krem sem veitir húðinni ríkulega rakagjöf og gefur henni samstundis ferskara, jafnara og ljómandi yfirbragð. Tvöföld hýaluronsýra veitir húðinni djúpvirkandi rakagjöf og fyllingu á meðan Soft Focus Pigments fylla uppí yfirborðslínur og gefa húðinni fallegan, náttúrulegan ljóma sem endurkasta birtu þannig húðin fær enn sléttari áferð. Þörungaþykkni úr Indlandshafi styður við sléttari og jafnari húðáferð. Equal Refining Complex stuðlar einnig að auknu jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar, dregur úr sýnileika húðhola og óæskilegum olíuglans með sampili aloe vera og allantoin sem sefa roða og hlúa að húðinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið reglulega notkun fínpússast áferð og yfirbragð húðarinnar og rannsóknir sýna fram á virkni þar sem stórar og opnar húðholur minnka og dragast saman um allt að 16% og dregið hefur úr olíuglans um allt að 21,7% eftir 28daga notkun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBerið Epigenetic Serum á hreina húð yfir andlit kvölds og morgna og nuddið mjúklega inn. Berið síðan Sensational Glow Cream yfir andlit, háls og bringu.\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67886442873152,"sku":null,"price":8466.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/EpiGlowDuo26vef.webp?v=1793109699"},{"product_id":"hydration-gift-duo","title":"Hydration Gift Duo","description":"\u003cp\u003eAllt sem þarf í notalega dekurstund heima! \u003cstrong\u003eHydration Gift Duo\u003c\/strong\u003e sameinar \u003cstrong\u003eDeep Xpress Hydro Mask\u003c\/strong\u003e og \u003cstrong\u003eHyaluron3 Replenish Cream\u003c\/strong\u003e úr \u003cstrong\u003eDry Skin\u003c\/strong\u003e vörulínu \u003cstrong\u003eJANSSEN COSMETICS\u003c\/strong\u003e ásamt mjúkri spöng sem er fullkomin til notkunar með húðumhirðu. Kemur í fallegum gjafapoka og er á frábæru tilboðsverði núna fyrir jólin.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003eFreistandi jólagjöf fyrir húðvöruunnendur og yndisleg leið til að kynna einhverjum góðar húðvörur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHentar öllum húðgerðum sem vantar raka og er einnig frábært val fyrir yngri húðgerðir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003e\u003cstrong\u003eDEEP XPRESS HYDRO MASK · 75 ml\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFrískandi gelmaski með langvarandi rakagjöf\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eKælandi gelformúlan veitir rakaþurri húð samstundis létti og dregur úr herpingstilfinningu vegna þurrks. Sérstaða maskans liggur í Hydro Express Complex: háþróaðri samsetningu hyaluronsýru, algínats og pullulans sem myndar ósýnilegt rakabindandi net á yfirborði húðarinnar. Þar geymast rakagefandi efni sem losna smám saman og veita húðinni jafna og langvarandi rakagjöf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRannsóknir á Hydro Express Complex sýna \u003cstrong\u003e25% aukningu á rakamagni húðarinnar eftir aðeins 30 mínútur og rakagefandi áhrif í allt að 48 klukkustundir eftir eina notkun.\u003c\/strong\u003e Við reglulega notkun getur aukið rakastig haldist í allt að fimm daga eftir síðustu ásetningu. Húðin verður ferskari, mýkri og sýnilega sléttari.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHYALURON³ REPLENISH CREAM · 30 ml\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÞreföld hyaluronsýra fyrir djúpvirkandi rakagjöf og mjúka húð.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNæringarríkt krem sem gefur húðinni meira en skammvinna mýkt. Þrjár gerðir hyaluronsýru vinna saman að því að binda raka, viðhalda honum og draga úr ásýnd fínna þurrklína. Avókadóolía nærir og mýkir, á meðan hvítt lúpínuþykkni styrkir varnarhjúp húðarinnar og hjálpar henni að verjast rakatapi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKremið er því kjörið framhald af rakameðferð maskans: það bætir við næringu og rakavernd svo húðin haldist mjúk, slétt og vel nærð. Sérstaklega góð tvenna fyrir þurra og rakaþurra húð sem þarfnast aukins raka og næringar yfir vetrarmánuðina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eMjúk hárspöng fylgir með\u003c\/strong\u003e fullkomin til að halda hárinu frá andlitinu við hreinsun húðarinnar og á meðan maski liggur á andlitinu.\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67886458667328,"sku":null,"price":7013.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/Janssen-Hydration-Gift-Duo.webp?v=1793110044"}],"url":"https:\/\/labellebeauty.is\/en\/collections\/janssen-cosmetics.oembed","provider":"La belle beauty Iceland","version":"1.0","type":"link"}