{"title":"Janssen Cosmetics — All Skin Needs","description":"\u003cp\u003eUppgötvaðu andlitsumhirðu fyrir allar húðgerðir og þarfir. Alhliða vöruúrval hannað til að henta öllum húðgerðum — þurri, feitri, viðkvæmri eða blandaðri. Treystu á hágæða formúlur sem eru hannaðar til að næra húðina og gefa henni heilbrigðan og geislandi ljóma.\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"blue-fresh-eye-care-15ml","title":"Blue Fresh Eye Care 15ml","description":"\u003cp\u003eDJÚPVIRKANDI AUGNGEL MEÐ SLÉTTANDI EIGINLEIKUM\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e▪ Styrkir varnarlag húðarinnar\u003cbr\u003e▪ Frískandi með kælandi áhrifum\u003cbr\u003e▪ Minnkar þreytumerki og dökka bauga\u003cbr\u003e▪ Fyllir samstundis uppí fínar línur vegna þurrks og minnkar umfang á dýpri línum\/hrukkum\u003cbr\u003e▪ Gefur góða rakafyllingu með sléttandi eiginleikum\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eVörunúmer: 83306\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default","offer_id":52742037471552,"sku":"83306","price":6375.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/Blue.png?v=1783350968"},{"product_id":"caviar-luxury-cream-50ml","title":"Caviar Luxury Cream 50ml","description":"\u003cp\u003eSannkallað vítaminboost fyrir allar húðgerðir sem vantar aukna orku, þéttingu og ljóma.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eCaviar er löngu þekkt munaðarvara og inniheldur einstaka samsetningu af steinefnum, vítamínum og aminosýrum. Kremið inniheldur hreint Caviar Extract og er áhrifarík meðferð fyrir þreytta og orkulausa húð þar sem samsetning vítamína, steinefna og aminosýra glæðir húðina nýjum og orkumeiri ljóma.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFrumustarfsemi húðarinnar eykst og hraðar nýmyndun kollagens sem gefur húðinni aukinn þéttleika með djúpvirkandi næringu sem fyllir húðlögin af raka og nauðsynlegum fitusýrum sem auka fyllingu, slétta yfirborð húðarinnar og gefur henni flauelsmjúka áferð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGefur húðinni fallegt yfirbragð og þreytumerki víkja fyrir frísklegan ljóma og bjartara yfirbragð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVörunúmer: JS0075\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default","offer_id":52742040551744,"sku":"JS0075","price":12742.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/Caviar_Luxury_Cream_50ml-300x300-1.jpg?v=1783350990"},{"product_id":"epigenetic-serum-10ml","title":"Epigenetic Serum 10ml","description":"\u003cdiv dir=\"auto\"\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003eEpigenetic Serum inniheldur djúpvirkandi formúlu sérþróaða til að auka náttúrulegt varnarlag og heilbrigði húðfrumna.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003eHáþróuð tækni sem styrkir náttúrulega frumustarfsemi og eykur varnarlag húðarinnar gegn skaðlegum ytri áhrifum og sporna gegn ótímabærri öldrun húðarinnar.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003eHúðin fær sléttara yfirbragð, fallegri áferð og bjartara yfirbragð.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003eInniheldur einungis hágæða hráefni með djúpa innsíunarhæfileika og hámarks virkni án þess að erta húðina.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003eEpigenetic Serum hægir sýnilega á öldrunarferli húðarinnar, fyrirbyggir ótímabæra öldrun, dregur sýnilega úr hrukkum\/línum í húðinni, eykur náttúrulegar varnir fyrir sindurefnum og niðurbroti, varðveitir hraustleika og unglegan ljóma húðarinnar.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003eEpigenetic Serum 10ml kemur í einstaklega fallegum söluumbúðum með skemmtilegu ívafi þar sem líkt er eftir læknasprautu til að undirstrika virkni og áhrif vörunnar.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003eLítill skrúfutappi er á enda „sprautunnar“ og pumpa á hinum endanum þannig ekkert súrefni kemst að vörunni og hámarksnýting af hverjum dropa!\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003ch2 dir=\"auto\"\u003eInniheldur:\u003c\/h2\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003e· Epigenetic agent: Pot marigold (calendula officinalis) Plöntuþykkni; Einstaklega ríkt af oligosaccharides sem eru náttúrulegar fjölsykrur með tvennskonar áhrif á utanaðkomandi áreiti á húðfrumur. Virka bæði sem viðgerð á þegar laskaðar frumur og sem varnarhjúpur gegn óæskilegum sindurefnum og hrörnunar húðfrumna.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003e· Long-chain hyaluronic acid: Langar keðjur af Hyaluron Sýru liggja eftir í efri lögum húðarinnar og mynda rakabindandi varnarfilmu á yfirborði húðarinnar og sporna gegn rakatapi og línum af völdum yfirborðsþurrks.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003e· Short-chain hyaluronic acid: Stuttar keðjur af Hyaluron Sýru síast niður í neðri húðlögin og auka á náttúrulegar rakabirgðir húðarinnar sem gefur henni aukna fyllingu og unglegra yfirbragð.\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv dir=\"auto\"\u003e· Saccharide isomerate: Náttúrulegar sykrur sem tengjast og binda sig við náttúrulegt keratin húðarinnar líkt og segull og veitir húðinni næringu og mýkt.\u003c\/div\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52742047564096,"sku":"JS0009","price":8755.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/2931_05_PIC-HIGH_EPIGENETIC_SERUM_3D-1.jpg?v=1783351040"},{"product_id":"face-guard-advanced-30ml","title":"Face Guard Advanced 30ml","description":"\u003cdiv class=\"elementor-element elementor-element-06b6059 elementor-widget elementor-widget-woocommerce-product-title elementor-page-title elementor-widget-heading\" data-id=\"06b6059\" data-element_type=\"widget\" data-e-type=\"widget\" data-widget_type=\"woocommerce-product-title.default\"\u003e\n\u003cdiv class=\"elementor-widget-container\"\u003e\n\u003ch1 class=\"product_title entry-title elementor-heading-title elementor-size-default\"\u003eFace Guard Advanced 30ml\u003c\/h1\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"elementor-element elementor-element-c596467 elementor-widget elementor-widget-woocommerce-product-short-description\" data-id=\"c596467\" data-element_type=\"widget\" data-e-type=\"widget\" data-widget_type=\"woocommerce-product-short-description.default\"\u003e\n\u003cdiv class=\"elementor-widget-container\"\u003e\n\u003cdiv class=\"woocommerce-product-details__short-description\"\u003e\n\u003cp\u003eLétt alhliða sólarvarnar-serum með SPF 30 og IR frumuvernd fyrir daglega noktun, hentar öllum húðgerðum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSvipað og útfjólubláir geislar valda innrauðir geislar sólarinnar einnig ótímabærri öldrun húðarinnar og geta leitt til óæskilegra húðskemmda síðar meir.\u003cbr\u003eHúðin í andlitinu er hvað mest berskjölduð fyrir geislum sólarinnar og er því ekki síður mikilvægt eins og að veita henni vörn gegn UVA og UVB geislum að tryggja húðinni þar einnig skilvirka hitavörn gegn IR geislum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFACE GUARD ADVANCED er létt alhliða formúla sem gefur húðinni góðann raka ásamt photostable UVA+UVB vörn og einstaka frumuvernd með virka efninu Ectoin®, sem hefur verið sannað að gefa húðinni skilvirka vörn gegn umhverfisáhrifum eins og þurrki, hita, kulda og útfjólubláum geislum að auki sjá  líftæknilega fengin ensím um að hlutleysa sindurefni, og veita húðinni aukinn varnarskjöld ásamt hitavörn gegn innrauðum geislum (IR)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFACE GUARD ADVANCED er frábær og einföld viðbót við morgunrútínuna og passar með öllum dagkremum eða farða fyrir alhliða vernd gegn UVA+UVB geislum, IR og aukinni frumuvernd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNoktun: Berið á hreina húð á morgnanna fyrir dagkrem eða farða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTip: FACE GUARD ADVANCED er einnig frábær vörn á handarbökin og virkar eins og ósýnilegur hanski til að koma í veg fyrir óæskilegar litabreytingar og aldursbletti.\u003cbr\u003eGott er að bera á handarbökin jafnt yfir daginn í útiveru eins og t.d. í golfi.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cp\u003eVörunúmer: 2832\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52742050251072,"sku":"2832","price":5415.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/2832_05_PIC_HIGH_FACE_GUARD_ADVANCED-2.jpg?v=1783351058"},{"product_id":"good-night-hand-mask-75ml","title":"Good Night Hand Mask 75ml","description":"\u003cp\u003eNærandi og uppbyggjandi næturmeðferð fyrir hendur og neglur með verndandi eiginleikum.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÁhrifarík næturmeðferð fyrir þurrar hendur, naglabönd og neglurnar sjálfar. Inniheldur ríkulegt magn af Biotin — B-Vítamíni sem styrkir neglurnar og spornar gegn því að þær klofni eða brotni.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eNæringarrík formúlan græðir þurra húð og sprungur, mýkir upp naglaböndin og vinnur gegn sáramyndun og þeim óþægindum sem fylgja þurrum höndum. Maskinn hefur langvarandi áhrif og verndar hendur gegn þurrki.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eMælt er með að nota maskann 2 sinnum í viku eða eftir þörfum — frábært að geyma á náttborðinu og bera á hendur og neglur rétt fyrir svefninn.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eVörunúmer: JS0085\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52742053036352,"sku":"JS0085","price":4225.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/79170404_10217817080392720_7375183446869540864_n-300x300-1.jpg?v=1783351077"},{"product_id":"good-night-lip-mask-15ml","title":"Good Night Lip Mask 15ml","description":"\u003cp\u003eDjúpvirkandi og einstaklega nærandi formúla sléttir varirnar, losar um herpingu og fyllir uppí fínar línur af völdum þurrks ásamt því að gefa aukna fyllingu. Dásamleg næturmeðferð fyrir mjúkar varir en hentar einnig vel sem varanæring yfir daginn og sem primer undir varaliti.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eVarirnar fá samstundis fylltara yfirbragð og frísklegri litatón með mildri glansáferð.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eInniheldur Paracress Extract (Spilanthes Acmella) — þekktur sem \"Botox jurtin\" sem slakar á spennu og herpingu í húðinni og hefur einstaklega sléttandi áhrif. Inniheldur einnig Shea butter, Linseed oil (Omega 3 og 6), Hyaluronic acid.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eVörunúmer: JS0074\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default","offer_id":52742055559488,"sku":"JS0074","price":5092.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/2501_GoodNight_LipMask.jpg?v=1783351094"},{"product_id":"hyaluron-lift-eye-pads-3x2stk","title":"Hyaluron Lift Eye Pads 3x2stk.","description":"\u003cp\u003e3x2 stk. í pakka — kælandi augnmaski tilbúin til notkunar!\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eDregur samstundis úr þrota og bólgum og örvar sogæðahreinsun með örvandi áhrifum frá koffíni — blámi undir augunum minnkar og húðin verður bjartari.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eMaskinn hefur einstaklega sléttandi áhrif með virku Paracress extract sem hefur Botox-lík áhrif á húðina — slakar á herpingu í litlum vöðvum undir augunum og sléttir þannig úr húðinni. Saman með löngum og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru sem fylla húðlögin af langvarandi raka og fyllingu.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eMaskanir eru úr 100% viscose fleece, biodegradable efni með OEKO-TEX Standard 100 sem brotnar niður án þess að valda skaða í náttúrunni.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eVörunúmer: 82661\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default","offer_id":52742058246464,"sku":"82661","price":2992.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/1_Hyaluron_Lift_Eye_Pads.jpg?v=1783351113"},{"product_id":"irresistible-eye-elixir-15ml","title":"Irresistible Eye Elixir 15ml","description":"\u003cp\u003eRoll-On fyrir augun sem dregur samstundis úr þreytumerkjum með kælandi stálkúlu á endanum sem gefur raka og með koffíni sem frískar sýnilega uppá augnsvæðið!\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eMeð einstaklega sléttandi áhrifum og fyrirbyggir ótímabæra öldrun, hrukkur og línur í kringum augun.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eSamspil innihaldsefna — koffín, sérþróuð anti-wrinkle peptíðblanda og Silk Acacia þykkni — draga sýnilega úr dökkum baugum og bólgum í kringum augnsvæði. Roll-on stálkúlan örvar sogæðahreinsun og veitir vellíðunartilfinningu með kælandi áhrifum.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eAlgjör draumur fyrir þreytt augu á morgnanna!\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eVörunúmer: JS0010\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default","offer_id":52742060998976,"sku":"JS0010","price":5440.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/2660_05_Pic_High_Irrestistible_Eye_Elixir_3D-1-1.jpg?v=1783351132"},{"product_id":"magic-glow-serum-30ml","title":"Magic Glow Serum 30ml","description":"\u003cp\u003eMagic Glow Serum gefur húðinni þetta \"highlight\" áhrif á náttúrulegan hátt án farða!\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eEinstök rakagefandi formúla með næringarríkum þara úr Indverska hafinu sem hefur sannað 28% aukningu á ljóma húðarinnar á 28 dögum með aukinni rakafyllingu og þéttleika. Rakagefandi Hyaluronic Sýra og Soft Focus Pigments hylja fínar línur og fylla á rakabirgðir húðarinnar með \"highlight\" áhrifum þegar birtan glampar á húðina.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eHentar fullkomlega undir farða eða annað krem eða eitt og sér fyrir ljómandi húð.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePro Tip!\u003c\/strong\u003e Fyrir enn meiri ljómaáhrif — notið undir Sensational Glow Cream\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eVörunúmer: JS0012\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52742063718720,"sku":"JS0012","price":8432.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/3D_Magic_Glow_Serum_2620-copy.jpg?v=1783351152"},{"product_id":"marine-collagen-cream-50ml","title":"Marine Collagen Cream 50ml","description":"\u003cdiv class=\"elementor-element elementor-element-06b6059 elementor-widget elementor-widget-woocommerce-product-title elementor-page-title elementor-widget-heading\" data-id=\"06b6059\" data-element_type=\"widget\" data-e-type=\"widget\" data-widget_type=\"woocommerce-product-title.default\"\u003e\n\u003cdiv class=\"elementor-widget-container\"\u003e\n\u003ch1 class=\"product_title entry-title elementor-heading-title elementor-size-default\"\u003eMarine Collagen Cream 50ml\u003c\/h1\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"elementor-element elementor-element-c596467 elementor-widget elementor-widget-woocommerce-product-short-description\" data-id=\"c596467\" data-element_type=\"widget\" data-e-type=\"widget\" data-widget_type=\"woocommerce-product-short-description.default\"\u003e\n\u003cdiv class=\"elementor-widget-container\"\u003e\n\u003cdiv class=\"woocommerce-product-details__short-description\"\u003e\n\u003cp\u003eÞéttandi og lyftandi 24.stunda krem með sjávarkollageni og kollagen-booster sem vinnur gegn kollagen niðurbroti húðarinnar og eykur þéttleika með lyftandi áhrifum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHúðin fær samstundis aukna rakafyllingu (“plump”) og verður þéttari viðkomu þar sem virk innihaldsefni binda raka í efstu húðlögunum og mynda ósýnilega varnarfilmu sem fyllir uppí fínar línur vegna rakaþurrks með sléttandi áhrifum á yfirborð húðarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMeð reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e-Virk innihaldsefni:\u003cbr\u003e*Marine Collagen (Sjávarkollagen): hefur lyftandi eiginlega á húðina og myndar varnarfilmu í efstu húðlögum sem bindur raka og eykur fyllingu húðarinnar með sléttandi áhrifum.\u003cbr\u003e*Pomegranate blóma þykkni og C vítamín virkja og styðja við aukna náttúrulega kollagen framleiðslu húðarinnar með andoxandi eiginleikum sem spornar gegn niðurbroti kollagenþráða og ótímabærri öldrun húðarinnar af völdum sindurefna (free radicals).\u003cbr\u003e-Til viðbótar fær húðin dásamlega mýkt og rakafyllingu með löngum keðjum af Hyaluronic sýru og nærandi Makadamíu olíu og frumuverndandi “anti aging” eiginleika E vítamíns.\u003cbr\u003e-Kremið hentar þurrum og rakaþurrum húðgerðum sem vantar aukinn þéttleika og fyllingu með lyftandi áhrifum.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cp\u003eVörunúmer: JC105\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52742066733376,"sku":"JC105","price":11042.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/marine_collagen_cream_50ml-300x300-1.jpg?v=1783351171"},{"product_id":"refreshing-face-mist-100ml-1","title":"Refreshing Face Mist 100ml","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNÝTT! REFRESHING FACE MIST\u003c\/strong\u003e  ómissandi núna fyrir sumarið!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRakagefandi andlitssprey með Skin Wall Care Complex, aloe vera og guarana sem eykur rakastig húðarinnar samstundis og veitir henni dásamlega frískandi tilfinningu með styrkjandi eiginleikum fyrir varnarhjúp húðarinnar.\u003cbr\u003eFíngerður úðinn umlykur húðina með léttu verndarlagi sem gerir hana fallega ferska, vel nærða og náttúrulega ljómandi.\u003cbr\u003eÞökk sé upplífgandi ilmi af eucalyptus, myntu og grænum telaufum veitir Refreshing Face Mist þér aukinn ferskleika hvenær og hvar sem er – tilvalið þegar þú ert á ferðinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSkin Wall Care Complex í úðanum veitir samstundis raka sem endist í allt að 120 klukkustundir. Það styrkir varnarhjúp húðarinnar, verndar húðina gegn rakatapi og skilur eftir sig frískandi og sefandi tilfinningu.\u003cbr\u003eSamsetningin er einnig hönnuð til að styðja við endurnýjun húðar sem hefur orðið fyrir álagi og eykur viðnámsþrótt hennar. Aloe vera og guarana gefa húðinni aukinn lífskraft og ferskleika. Aloe vera er ríkt af fjölsykrum, ensímum, nauðsynlegum amínósýrum, vítamínum, steinefnum og mörgum öðrum virkum efnum. Það virkar sem náttúrulegur rakagjafi með sefandi og endurlífgandi áhrif. Eimaður kjarni úr guarana-plöntunni magnar einnig upp frískandi áhrif formúlunnar og skilur húðina eftir líflegri og endurnærða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eREFRESHING FACE MIST\u003c\/strong\u003e má nota bæði undir og yfir farða.\u003cbr\u003e– Þegar það er notað undir farða gefur það raka, verndar og sefar húðina.\u003cbr\u003e– Þegar það er notað yfir farða hjálpar það til við að festa förðunina og gefur fallega, ferska og ljómandi áferð.\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default","offer_id":52742069354816,"sku":"1568","price":3332.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/Face-Mist-vefur_29bb1d0b-33c3-4e7f-8fb7-a4ba6da3e647.png?v=1783351190"},{"product_id":"sensational-glow-cream-50ml","title":"Sensational Glow Cream 50ml","description":"\u003cp\u003eNæringarríkt 24-stunda krem sem fær húðina bókstaflega til að ljóma!\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eKremið veitir húðinni djúpa næringu við fyrstu snertingu og smýgur á milli húðlaga og gefur henni samstundis rakafyllingu sem fyllir uppí fínar línur og yfirborðsþurrk.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eKremið er sérþróað til þess að auka ljóma húðarinnar og samanstendur af virkum efnum eins og koffíni sem eykur blóðrás húðarinnar, Indian Ocean Algae Extract, Hyaluronic Sýru og Soft Focus Pigments sem fylla uppí yfirborðslínur og gefa þennan einstaka glampa á húðina án þess að skilja eftir sig olíuglans.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eHentar öllum húðgerðum sem vilja aukinn ljóma og glampa — einnig viðkvæmum húðgerðum.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePro Tip!\u003c\/strong\u003e Notið Magic Glow Serum undir á morgnanna fyrir enn meiri ljóma.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eVörunúmer: JS0011\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52742074597696,"sku":"JS0011B","price":9478.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/GlowCream-Comp-300x300-1.jpg?v=1783351227"},{"product_id":"peptide-serum-30ml","title":"Peptide Serum 30ml","description":"\u003cp\u003eHúðþéttandi serum sem gefur húðinni sýnilega sléttari áferð og aukinn húðljóma!\u003c\/p\u003e\u003cp\u003ePeptide Serum sameinar tvö afar áhrifarík og virk peptíð með hyaluronsýrum og pullulani til að örva endurnýjun húðarinnar og draga úr sýnileika fínna lína og hrukka. Létt formúlan stuðlar að auknum þéttleika, mýkt og sléttari áferð húðarinnar sem öðlast unglegra yfirbragð og frísklegan ljóma.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eBiopeptíð úr trönuberjum veita víðtæka virkni gegn sýnilegum öldrunareinkennum — þetta öfluga peptíð eykur þéttleika húðarinnar, dregur úr og minnkar dýpt á línum og hrukkum, styrkir náttúrulegan varnarhjúp hennar og stuðlar að ljómandi yfirbragði.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eAð auki draga Botox-líkt peptíð úr samdrætti í andlitsvöðvum, sem leiðir til minni sýnileika hrukka og sléttari áferð húðarinnar. Náttúrulega fjölsykran pullulan hefur samstundis húðþéttandi áhrif og hefur jafnframt langvarandi virkni. Stutt- og langkeðju hyaluronsýrur veita húðinni aukna mýkt og fyllingu með öflugri rakagjöf. Fínar línur vegna rakaþurrks hverfa samstundis og húðin verður mýkri viðkomu.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eLétta O\/W-formúlan frásogast hratt niður húðlögin og þróar virkni sína til fulls með tímanum, sérstaklega þegar notað samhliða húðkremi úr DEMANDING SKIN línunni eftir þörfum húðarinnar.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVirk innihaldsefni:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eCranberry Bio Peptide:\u003c\/strong\u003e Öflugt peptíð úr trönuberjum með víðtæka virkni gegn sýnilegum öldrunareinkennum. Eykur þéttleika húðarinnar, dregur úr hrukkum, styrkir náttúrulegan varnarhjúp hennar og stuðlar að auknum ljóma. Rannsóknir sýna aukinn ljóma hjá 94% notenda, 19% minnkun á dýpt hrukka og 7% minnkun á sýnilegum línum í kringum augun.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eBotox-like peptides:\u003c\/strong\u003e Acetyl hexapeptide-8 dregur úr samdrætti í andlitsvöðvum og minnkar þannig ásýnd hrukka — mildari og öruggari nálgun en botulinum toxin A.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003ePullulan:\u003c\/strong\u003e Veitir húðinni samstundis og langvarandi húðþéttandi áhrif. Samstundis áhrif: allt að 130% meiri húðþétting.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eLangar og stuttar keðjur af Hyaluron sýru:\u003c\/strong\u003e Veita húðinni langvarandi raka og draga úr fínum línum og hrukkum með sléttandi eiginleikum.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\u003cp\u003eVörunúmer: 83600\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52774682001728,"sku":"83600","price":7480.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/jpg.Peptide-Serum-30ml-Comp--scaled.jpg?v=1783692998"},{"product_id":"marine-collagen-gjafaaskja","title":"Marine Collagen gjafaaskja","description":"\u003cdiv class=\"elementor-element elementor-element-06b6059 elementor-widget elementor-widget-woocommerce-product-title elementor-page-title elementor-widget-heading\"\u003e\n\u003cdiv class=\"elementor-widget-container\"\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"elementor-element elementor-element-c596467 elementor-widget elementor-widget-woocommerce-product-short-description\"\u003e\n\u003cdiv class=\"elementor-widget-container\"\u003e\n\u003cdiv class=\"woocommerce-product-details__short-description\"\u003e\n\u003ch3 class=\"cvGsUA direction-ltr align-end para-style-body\"\u003e\n\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eHreinn lúxús með dýrmætu\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003ekollageni í glæsilegri gjafaöskju\u003c\/span\u003e\n\u003c\/h3\u003e\n\u003cp class=\"cvGsUA direction-ltr align-start para-style-body\"\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eÖflug innihaldsefni í hámarksgæðum!\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eHáárangursríkt húðumhirðu tvíeyki með Marine Collagen Fluid og lúxus Marine Collagen Cream sem byggir á sjávar­kollageni, hýalúrónsýru og granatepla extract.\u003cbr\u003eÚtkoman er áhrifarík: húðin verður sjáanlega sléttari, stinnari og fær dásamlegan ljóma!\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003eInniheldur 1x Marine Collagen Cream 50ml \u0026amp; 7stk ACTIVATE Marine Collagen Fluid Ampúlur\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003eÞéttandi og lyftandi formúlur einkenna virkni í þessum vörum 24stunda krem og ampúlur með hreinu sjávarkollageni og kollagen-booster sem vinnur gegn kollagen niðurbroti húðarinnar og eykur þéttleika með lyftandi áhrifum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMeð reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e-Virk innihaldsefni:\u003cbr\u003e*Marine Collagen (Sjávarkollagen): hefur lyftandi eiginlega á húðina og myndar varnarfilmu í efstu húðlögum sem bindur raka og eykur fyllingu húðarinnar með sléttandi áhrifum.\u003cbr\u003e*Pomegranate blóma þykkni og C vítamín virkja og styðja við aukna náttúrulega kollagen framleiðslu húðarinnar með andoxandi eiginleikum sem spornar gegn niðurbroti kollagenþráða og ótímabærri öldrun húðarinnar af völdum sindurefna (free radicals).\u003cbr\u003e-Til viðbótar fær húðin dásamlega mýkt og rakafyllingu með löngum keðjum af Hyaluronic sýru og nærandi Makadamíu olíu og frumuverndandi “anti aging” eiginleika E vítamíns.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHentar þurrum\/rakaþurrum húðgerðum sem vantar aukinn þéttleika og fyllingu með lyftandi áhrifum og líflegum húðljóma.\u003cbr\u003eFullkomið krem yfir veturinn!\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"janssen cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53115920580928,"sku":null,"price":13337.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/Activate-Ampulle-MarineCollagen.webp?v=1788865010"},{"product_id":"ampulu-adventu-dagatal-2026","title":"Ampúlu Aðventu Dagatal 2026","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eJANSSEN COSMETICS aðventudagatalið\u003c\/strong\u003e er dásamleg leið til þess að hleypa smá auka birtu inn í skammdegið og njóta aðventunnar enn frekar þar sem hver dagur verður dekurdagur. Nærandi niðurtalning til jóla með fullkomlega samsettum ampúlukúr sem svíkur engan.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e25 sérvaldar ampúlur í 24 daga meðferð sem gefur húðinni ríkulegan raka, sléttari áferð og geislandi ljóma fyrir hátíðirnar.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVinsæla ampúlujóladagatalið frá JANSSEN COSMETICS sækir í ár innblástur í litadýrð norðurljósanna. Í glæsilegum umbúðum leynast 25 sérvaldar ampúlur sem mynda 24 daga húðmeðferð þar sem mismunandi ampúlur vinna saman að því að endurnæra húðina, draga úr þreytumerkjum, auka rakafyllingu og bæta þéttleika hennar. Dag frá degi fær húðin markvissa meðferð og sérstaka dekurstund í aðdraganda jólanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDagatalið er gefið út í takmörkuðu upplagi á hverju ári og býður viðskiptavinum upp á einstakan 24 daga ampúlukúr á frábæru jólatilboði og er nú þegar orðið ómissandi partur af aðventunni fyrir marga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAmpúlur JANSSEN COSMETICS innihalda virk efni í háum styrk, skömmtuð í glerampúlur sem varðveita gæði innihaldsins fram að notkun. Allt innihald hverrar ampúlu er ætlað í eina meðferð og er borið beint á hreina húð, áður en aðrar húðvörur eru notaðar. Gott er að hella um helmingi í lófann í einu og bera jafnt á húðina með léttum klappandi eða þrýstandi hreyfingum á meðan efnin ganga niður í húðina. Síðan er afgangurinn borinn á með sama hætti.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSérvaldar ampúlur í hverjum glugga –\u003c\/strong\u003e \u003cstrong\u003eRöðin er vandlega úthugsuð til að nýta eiginleika þeirra sem best.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKúrinn hefst á \u003cstrong\u003eHyaluron Fluid\u003c\/strong\u003e sem fyllir húðlögin af nauðsynlegum raka og eykur á flutningsleiðir virkra efna niður húðina. Því meiri raki sem er í húðinni því betri verður upptaka virkra efna. Öflug andoxunarefni eiga nú greiða boðleið og húðin er orðin vel móttækileg fyrir áframhaldandi meðferð. \u003cstrong\u003eStem\u003c\/strong\u003e \u003cstrong\u003eCell Fluid\u003c\/strong\u003e fylgir á eftir með stuðningi við náttúrulega endurnýjun húðarinnar og sléttari áferð. Því næst kemur einn af hápunktum kúrsins, \u003cstrong\u003eBrilliance Shine Elixir\u003c\/strong\u003e. Þessi lúxusampúla sameinar húðsléttandi Matrixyl™ Synthe’6™ peptíð, þykkni úr persnesku silkitré og rakagefandi hyaluronsýru. Hún dregur úr þreytumerkjum og ásýnd fínna lína og gefur húðinni ferskara og úthvíldara yfirbragð. Meðferðin með henni er endurtekin yfir aðventuna og tengir þannig saman ólíka hluta kúrsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVita X Power Fluid\u003c\/strong\u003e tekur síðan við með öflugri andoxunarvörn frá astaxanthíni og C-vítamíni, áður en \u003cstrong\u003eMarine Collagen Fluid\u003c\/strong\u003e veitir húðinni raka og sýnileg þéttandi áhrif með rakabindandi sjávarkollageni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁ seinni hluta kúrsins vinnur \u003cstrong\u003eAnti-Wrinkle Booster\u003c\/strong\u003e að sléttari húð með 3-D lifting áhrifum og langvarandi rakagjöf. \u003cstrong\u003eRadiant Skin Fluid\u003c\/strong\u003e eykur síðan birtu og ljóma húðarinnar þegar nær dregur hátíðunum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSíðustu dagana fyrir jól veitir \u003cstrong\u003eBi-Phase Skin Recovery\u003c\/strong\u003e nærandi og endurnærandi meðferð. \u003cstrong\u003eEye Flash Fluid\u003c\/strong\u003e veitir húðinni í kringum augun raka, sléttir fínar línur og dregur úr þrota svo augnsvæðið fær ferskara og úthvíldara yfirbragð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTvöfaldur gluggi á aðfangadag!\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁ bak við síðasta gluggann bíða \u003cstrong\u003eMarine Collagen Fluid og Vita X Power Fluid\u003c\/strong\u003e í tvöfaldri mini-booster ampúlumeðferð. Ampúlurnar eru bornar á húðina hvor á eftir annarri og sameina rakagjöf, þéttandi áhrif og öfluga andoxunarvörn með tvöfaldri virkni. Glæsileg lokameðferð sem innsiglar kúrinn og gefur húðinni einstaka fyllingu og ljóma fyrir aðfangadagskvöld.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGjafafegurð innblásin af norðurljósunum….\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDjúpur blágrænn litur, silfrað glit og upphleypt merki prýða dagatalið, sem opnast líkt og bók. Falleg aðventugjöf fyrir þann sem kann að meta vandaðar húðvörur og sýnilegan árangur eða dekurgjöf sem þú leyfir þér að njóta í desember.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eDagatalið inniheldur 25 ampúlur og ampúluopnara sem fylgir með í fyrsta glugg\u003c\/strong\u003eanum.\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67844226515264,"sku":null,"price":10965.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/magnific_Composing_3-1_edited-scaled.webp?v=1792692196"},{"product_id":"energizing-2-phase-oil-serum-30ml","title":"ENERGIZING 2-Phase Oil Serum | 30ml","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNæring, raki og ljómi í tveimur fösum\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLúxus tvífasa olíuserum með kavíarþykkni og perludufti sem veitir þurri húð ríkulega næringu og raka. Húðin verður silkimjúk og sléttari með ferskara yfirbragði og fallegum ljóma.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÁ sérstöku jólatilboði – falleg gjöf og kærkomin viðbót við daglega húðmeðferð yfir vetrarmánuðina.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eCaviar 2-Phase Oil Serum sameinar næringarríkar olíur og öfluga rakagjöf í formúlu sem veitir húðinni aukna mýkt, næringu og vernd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOlíufasinn inniheldur arganolíu og squalane sem mýkja húðina, styrkja varnarhjúp hennar og draga úr rakatapi. Í rakafasanum vinna kavíarþykkni og perluduft með Saccharide Isomerate, glýseríni og hyaluronsýru að öflugri rakagjöf. Saman stuðla fasarnir að fyllri og líflegri ásýnd húðarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHelstu eiginleikar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eVeitir þurri og rakaþurri húð næringu og langvarandi raka.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eStyrkir varnarhjúp húðarinnar og verndar gegn rakatapi.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSléttir áferð húðarinnar og gefur henni silkimjúka viðkomu.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eEykur ljóma og frískar upp á þreytt yfirbragð.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHristið vel fyrir notkun svo fasarnir blandist saman. Setjið 2–3 dropa í lófann og berið á hreina húð á andliti, hálsi og bringu kvölds og morgna. Látið serumið ganga inn í húðina og ljúkið með því kremi frá Janssen Cosmetics sem þið notið venjulega, ef þörf er á.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSerumið hentar sérstaklega vel með Caviar Luxury Cream þegar húðin þarfnast ríkulegrar næringar. Einnig má nota það eitt og sér eftir ástandi og þörfum húðarinnar.\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67844238213440,"sku":null,"price":5202.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/2-phase-insta.webp?v=1792692409"},{"product_id":"caviar-luxury-cream-20ml","title":"Caviar Luxury Cream 20ml","description":"\u003cp\u003eÞrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Veldu á milli Caviar Luxury Cream, Vitaforce C Cream eða Sensational Glow Cream, sem hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eCaviar Luxury Cream\u003c\/strong\u003e er nærandi lúxuskrem með kavíarþykkni sem endurvekur þurra og þreytta húð. Það gefur húðinni fyllingu, dregur úr sýnilegum línum og hrukkum og skilur hana eftir silkimjúka og ljómandi. Ríkuleg áferðin bráðnar inn í húðina og veitir strax þægilega mýkt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKavíarþykkni, ríkt af amínósýrum, vítamínum og lípíðum, nærir húðina og styður náttúrulega endurnýjun hennar. Virk efni styðja við myndun próteina sem styrkja tengingu húðlaganna og dregur úr dýpt hrukkna. Hyaluronsýra með löngum og stuttum keðjum eykur rakastig og fyllingu, á meðan Saccharide Isomerate bindur raka í húðinni og viðheldur honum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtkoman er sléttari og þéttari húð með ferskara yfirbragði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSérlega góður kostur fyrir þurra húð sem þarfnast aukinnar næringar og sýnir merki um minnkandi þéttleika.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun:\u003c\/strong\u003e Berið á hreina húð í andliti, á hálsi og bringu kvölds og morgna og nuddið mjúklega inn\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67886397948224,"sku":null,"price":3111.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/AI_Caviar-luxury-Cream-with-texture-1-scaled.webp?v=1793108850"},{"product_id":"epigenetic-glow-duo","title":"Epigenetic Glow Duo","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEpigenetic Glow Duo – tímalaus fegurð og geislandi ljómi\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHáþróuð virkni gegn öldrunareinkennum og samstundis meiri húðljómi. Epigenetic Serum og Sensational Glow Cream sameina krafta sína í öflugu tvíeyki sem hjálpar húðinni að viðhalda unglegu yfirbragði með háþróaðri epigenetic tækni. \u003cspan class=\"a_GcMg font-feature-liga-off font-feature-clig-off font-feature-calt-off text-decoration-none text-strikethrough-none\"\u003eViðgerðarferli og varnarviðbragð húðfrumna er glætt nýrri orku sem styrkir mótstöðuafl og eykur lífsþrótt sem skilar af sér lengri líftíma húðfrumna.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið það fær húðin aukna seiglu sem hægir á náttúrulegu öldrunarferli og hrörnun líkt og tíminn standi í stað!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEpigenetic Serum vinnur gegn áhrifum ytra álags á húðina og styður við mótstöðu hennar, á meðan Sensational Glow Cream eykur rakafyllingu og gefur yfirborðinu sléttari ásýnd. Saman mæta vörurnar þörfum húðar sem farin er að sýna fínar línur, rakaþurrk og minnkandi ljóma — falleg gjöf fyrir húðina og dekur til að njóta á hverjum degi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSettið kemur í fallegum gjafapoka frá Janssen Cosmetics.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eInniheldur 1x Epigenetic Serum 10 ml og 1x Sensational Glow Cream 20 ml.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEpigenetic Serum · 10 ml\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSérhæft serum sem byggir á epigenetískri tækni til að vinna gegn sýnilegum öldrunareinkennum. Kjarninn í formúlunni er virkt efni úr blómum Calendula officinalis sem hjálpar til við að draga úr epigenetískum breytingum af völdum umhverfisáhrifa og styður við lífsþrótt og mótstöðu húðfrumna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHyaluronsýra og Saccharide Isomerate bæta rakabindingu húðarinnar og hjálpa henni að varðveita raka. Húðin fær aukna mýkt og rakafyllingu sem sléttir úr fínum línum á yfirborði húðarinnar og minnkar umfang á dýpri línum sem undirstrikar unglegt yfirbragð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSensational Glow Cream · 20 ml\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSensational Glow Cream er eitt af söluhæstu kremum JANSSEN COSMETICS og fylgir með í hátíðarútgáfu í 20ml túpu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSensational Glow Cream er 24 stunda krem sem veitir húðinni ríkulega rakagjöf og gefur henni samstundis ferskara, jafnara og ljómandi yfirbragð. Tvöföld hýaluronsýra veitir húðinni djúpvirkandi rakagjöf og fyllingu á meðan Soft Focus Pigments fylla uppí yfirborðslínur og gefa húðinni fallegan, náttúrulegan ljóma sem endurkasta birtu þannig húðin fær enn sléttari áferð. Þörungaþykkni úr Indlandshafi styður við sléttari og jafnari húðáferð. Equal Refining Complex stuðlar einnig að auknu jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar, dregur úr sýnileika húðhola og óæskilegum olíuglans með sampili aloe vera og allantoin sem sefa roða og hlúa að húðinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið reglulega notkun fínpússast áferð og yfirbragð húðarinnar og rannsóknir sýna fram á virkni þar sem stórar og opnar húðholur minnka og dragast saman um allt að 16% og dregið hefur úr olíuglans um allt að 21,7% eftir 28daga notkun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBerið Epigenetic Serum á hreina húð yfir andlit kvölds og morgna og nuddið mjúklega inn. Berið síðan Sensational Glow Cream yfir andlit, háls og bringu.\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67886442873152,"sku":null,"price":8466.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/EpiGlowDuo26vef.webp?v=1793109699"},{"product_id":"hydration-gift-duo","title":"Hydration Gift Duo","description":"\u003cp\u003eAllt sem þarf í notalega dekurstund heima! \u003cstrong\u003eHydration Gift Duo\u003c\/strong\u003e sameinar \u003cstrong\u003eDeep Xpress Hydro Mask\u003c\/strong\u003e og \u003cstrong\u003eHyaluron3 Replenish Cream\u003c\/strong\u003e úr \u003cstrong\u003eDry Skin\u003c\/strong\u003e vörulínu \u003cstrong\u003eJANSSEN COSMETICS\u003c\/strong\u003e ásamt mjúkri spöng sem er fullkomin til notkunar með húðumhirðu. Kemur í fallegum gjafapoka og er á frábæru tilboðsverði núna fyrir jólin.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003eFreistandi jólagjöf fyrir húðvöruunnendur og yndisleg leið til að kynna einhverjum góðar húðvörur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHentar öllum húðgerðum sem vantar raka og er einnig frábært val fyrir yngri húðgerðir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003e\u003cstrong\u003eDEEP XPRESS HYDRO MASK · 75 ml\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFrískandi gelmaski með langvarandi rakagjöf\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eKælandi gelformúlan veitir rakaþurri húð samstundis létti og dregur úr herpingstilfinningu vegna þurrks. Sérstaða maskans liggur í Hydro Express Complex: háþróaðri samsetningu hyaluronsýru, algínats og pullulans sem myndar ósýnilegt rakabindandi net á yfirborði húðarinnar. Þar geymast rakagefandi efni sem losna smám saman og veita húðinni jafna og langvarandi rakagjöf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRannsóknir á Hydro Express Complex sýna \u003cstrong\u003e25% aukningu á rakamagni húðarinnar eftir aðeins 30 mínútur og rakagefandi áhrif í allt að 48 klukkustundir eftir eina notkun.\u003c\/strong\u003e Við reglulega notkun getur aukið rakastig haldist í allt að fimm daga eftir síðustu ásetningu. Húðin verður ferskari, mýkri og sýnilega sléttari.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHYALURON³ REPLENISH CREAM · 30 ml\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÞreföld hyaluronsýra fyrir djúpvirkandi rakagjöf og mjúka húð.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNæringarríkt krem sem gefur húðinni meira en skammvinna mýkt. Þrjár gerðir hyaluronsýru vinna saman að því að binda raka, viðhalda honum og draga úr ásýnd fínna þurrklína. Avókadóolía nærir og mýkir, á meðan hvítt lúpínuþykkni styrkir varnarhjúp húðarinnar og hjálpar henni að verjast rakatapi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKremið er því kjörið framhald af rakameðferð maskans: það bætir við næringu og rakavernd svo húðin haldist mjúk, slétt og vel nærð. Sérstaklega góð tvenna fyrir þurra og rakaþurra húð sem þarfnast aukins raka og næringar yfir vetrarmánuðina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eMjúk hárspöng fylgir með\u003c\/strong\u003e fullkomin til að halda hárinu frá andlitinu við hreinsun húðarinnar og á meðan maski liggur á andlitinu.\u003c\/p\u003e","brand":"Janssen Cosmetics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67886458667328,"sku":null,"price":7013.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/files\/Janssen-Hydration-Gift-Duo.webp?v=1793110044"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0675\/7112\/2496\/collections\/all-skin.jpg?v=1783350930","url":"https:\/\/labellebeauty.is\/en\/collections\/janssen-cosmetics-all-skin-needs.oembed","provider":"La belle beauty Iceland","version":"1.0","type":"link"}